Kjarasamninganefnd

1. fundur 26. janúar 2015 kl. 11:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir fundarritari
Dagskrá

1.TV einingar - úthlutun vorið 2015

Málsnúmer 2015010236Vakta málsnúmer

Kynntar reglur um úthlutun TV eininga vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna. Auglýst hefur verið eftir umsóknum og er skilafrestur umsókna og umsagna embættismanna 1. mars n.k.

2.Stjórnendaálag

Málsnúmer 2015010235Vakta málsnúmer

Umræða um reglur Akureyrarbæjar og fyrirkomulag greiðslu stjórnendaálags skv. grein 1.5.3 í kjarasamningum aðildarfélaga BHM og fleiri félaga.
Kjarasamninganefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að gerð verði breyting á áður samþykktu fyrirkomulagi.

3.Kjaramál

Málsnúmer 2015010122Vakta málsnúmer

Umræður um stöðu kjaramála og kjaraviðræður sem framundan eru á árinu 2015.

4.Kjölur - ósk um tilnef ningu í stjórn Vísindasjóðs Kjalar

Málsnúmer 2015010239Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Örnu Jakobínu Björnsdóttur formanns Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannþjónustu þar sem óskað er eftir tilnefningu í stjórn Vísindasjóðs Kjalar vegna tónlistarskólakennara.
Kjarasamninganefnd samþykkir að skipa Silju Dögg Baldursdóttur L-lista og Gunnar Gíslason D-lista fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Vísindasjóðs Kjalar vegna tónlistarskólakennara.

Fundi slitið.