Kjarasamninganefnd

3. fundur 22. mars 2013 kl. 13:00 - 13:55 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hjalti Ómar Ágústsson
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir fundarritari
Dagskrá

1.Stjórnendaálag

Málsnúmer 2013020280Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. febrúar 2013 frá framkvæmdastjóra búsetudeildar vegna endurskoðunar á stjórnendaálagi forstöðumanns.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Margrét Alfreðsdóttir skrifstofustjóri búsetudeildar mættu á fund nefndarinnar.

Kjarasamninganefnd synjar beiðni um endurskoðun á stjórnendaálagi forstöðumanns á búsetudeild þar sem skilyrði um greiðslu stjórnendaálags sem fram koma í 5. grein "Skilgreiningar og framkvæmd greinar 1.5.3 í kjarasamningum LN og aðildarfélaga BHM" dags. 6. mars 2007, a. og b. lið eru ekki uppfyllt.

Fundi slitið - kl. 13:55.