Kjarasamninganefnd

1. fundur 04. febrúar 2011 kl. 13:00 - 15:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hjalti Ómar Ágústsson
  • Hallgrímur Guðmundsson
Dagskrá

1.Stjórnendaálag

Málsnúmer 2011020006Vakta málsnúmer

Erindi frá framkvæmdastjóra búsetudeildar, Kristínu Sóley Sigursveinsdóttur, dags. 1. febrúar 2011 varðandi túlkun á reglum Akureyrarbæjar um stjórnendaálag skv. grein 1.5.3 í kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og aðildarfélaga BHM.
Karl Guðmundsson verkefnastjóri sat fund nefndarinnar undir þessum lið.

Samhljóða niðurstaða kjarasamninganefndar varðandi túlkun á 5. gr. skilgreiningar Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags er að starf forstöðumanns skammtímavistunar og Árholts uppfylli ekki skilyrði 5. greinar vegna greiðslu viðbótarálags. Starfið uppfyllir ekki c. lið 5. greinar sem er svohljóðandi: "5. c. Stjórnandi stýrir meira en einni starfseiningu. Starfseining telst vera sambýli/þjónustukjarni þar sem 4 eða fleiri íbúar búa."

2.Yfirvinna starfsmanna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010030034Vakta málsnúmer

Umfjöllun um yfirvinnu hjá stofnunum íþróttadeildar.

Umfjöllun frestað til næsta fundar kjarasamninganefndar.

3.Deildarstjóri á sambýli - launaröðun

Málsnúmer 2011010063Vakta málsnúmer

Erindi dags.11. janúar 2011 frá forstöðumanni sambýlisins Geislatúni 1 og framkvæmdastjóra búsetudeildar vegna launaröðunar deildarstjóra skv. stofnanasamningi Akureyrarbæjar og SFR.

Kjarasamninganefnd Akureyrarbæjar tók fyrir á fundi sínum 29. apríl 2009 erindi varðandi endurskoðun á launaröðun í stofnanasamningi SFR og Akureyrarbæjar dags. 17. janúar 2007. Bókun kjarasamninganefndar er svohljóðandi: "Kjarasamninganefnd lítur svo á að forsendur sem lágu til grundvallar þegar gengið var frá samningi í janúar 2007 um launaröðun starfa skv. kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hafi ekki breyst og því ekki tilefni til breytinga á samningi aðila."

Miðað við forsögu þessa máls er niðurstaða kjarasamninganefndar að afgreiðsla kjarasamninganefndar 29. apríl 2009 standi óbreytt.

Fundi slitið - kl. 15:20.