Kjarasamninganefnd

2. fundur 18. mars 2011 kl. 13:00 - 15:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hjalti Ómar Ágústsson
  • Hallgrímur Guðmundsson
Dagskrá

1.Yfirvinna starfsmanna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010030034Vakta málsnúmer

Umfjöllun um þróun yfirvinnu hjá stofnunum íþróttadeildar síðustu ár.
Á fund nefndarinnar mættu Nói Björnsson formaður íþróttaráðs og Kristinn H. Svanbergsson íþróttafulltrúi.

Kjarasamninganefnd þakkar formanni íþróttaráðs og íþróttafulltrúa fyrir yfirferðina og góðar umræður. Nefndin áréttar mikilvægi þess að stofnanir Akureyrarbæjar sýni aðhald hvað yfirvinnu varðar og felur íþróttafulltrúa að vinna tillögur er varða einstaka stofnanir.

2.Staða námsstyrkjasjóðanna

Málsnúmer 2010120025Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd skipaði að ósk bæjarstjóra viðræðuhóp til viðræðna við kjarasamninganefnd um fjármögnun námstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar. Viðræðuhópinn skipa Hrafnhildur Sigurðardóttir, Leifur Þorsteinsson og Friðný Sigurðardóttir og mættu þau á fund kjarasamninganefndar undir þessum lið.

Kjarasamninganefnd þakkar viðræðuhópnum komuna og gagnlegar umræður.

Kjarasamninganefnd felur formanni kjarasamninganefndar og starfsmannastjóra að vinna áfram að málinu.

3.Stjórnendaálag

Málsnúmer 2010100137Vakta málsnúmer

Umfjöllun um greiðslu stjórnendaálags til stjórnenda hjá Akureyrarbæ. Stjórnendaálag er greitt skv. reglum Akureyrarbæjar sem settar eru í samræmi við heimild í grein 1.5.3 í kjarasamningum stéttarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 15:20.