Kjarasamninganefnd

4. fundur 30. september 2019 kl. 11:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Eva Hrund Einarsdóttir sat fundinn í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Samfélagssvið - skipurit

Málsnúmer 2019090568Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að tímabundinni breytingu á skipuriti samfélagssviðs.
Kjarasamninganefnd samþykkir tímabundna breytingu á skipuriti samfélagssviðs.

2.Næturvaktir hjúkrunafræðinga á ÖA

Málsnúmer 2019090569Vakta málsnúmer

Kynnt tilraunaverkefni um fyrirkomulag næturvakta hjúkrunarfræðinga á ÖA.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Starfsmat Verkfræðingafélags Íslands og Félags byggingafræðinga - framkvæmd 2019

Málsnúmer 2019090576Vakta málsnúmer

Kynnt staða vinnu við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá Verkfræðingafélagi Íslands og Stéttarfélagi byggingafræðinga.
Kjarasamninganefnd lýsir vonbrigðum með að ekki skuli vera hægt að ganga frá starfsmati vegna skorts á upplýsingum frá einstaka sveitarfélögum.

4.Starfsmat Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga - framkvæmd 2019

Málsnúmer 2019090570Vakta málsnúmer

Kynnt staða við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Kjarasamninganefnd lýsir yfir vonbrigðum með þann drátt sem orðið hefur á vinnslu gagna hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og leggur áherslu á að málið verði klárað sem fyrst.

5.Starfsmat aðildarfélaga BHM - framkvæmd 2019

Málsnúmer 2019020021Vakta málsnúmer

Kynnt staða vinnu við innleiðingu starfsmats sveitarfélaga hjá aðildarfélögum BHM sem samið hafa um starfsmat.

6.Í skugga valdsins #metoo - kynning

Málsnúmer 2019090491Vakta málsnúmer

Umfjöllun um endurskoðaðar siðareglur kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar, samskiptasáttmála kjörinna fulltrúa Akureyrarbæjar og leiðbeiningar um skráningu kjörinna fulltrúa hjá Akureyrarbæ á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum sem samþykktar voru í bæjarstjórn 17. september 2019. Einnig kynntir verkferlar mála sem upp kunna að koma.
Að umfjöllun lokinni undirrituðu nefndarmenn yfirlýsingu um siðareglur og samskiptasáttmála.

7.Tímabundið tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti

Málsnúmer 2015090067Vakta málsnúmer

Umfjöllun um framhald tímabundins tilraunaverkefnis um fyrirkomulag vinnutíma starfsmanna á Pálmholti.

Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri leikskólans Pálmholts og Áslaug Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri Pálmholts sátu fundinn undir þessum lið.
Kjarasamninganefnd samþykkir að framlengja verkefnið til 31. deember 2019.

Fundi slitið.