Kjarasamninganefnd

3. fundur 11. júní 2019 kl. 12:30 - 13:23 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Verklagsreglur um auglýsingar starfa og tímabundnar ráðningar starfsfólks Akureyrarbæjar 2019

Málsnúmer 2019010259Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 4. júní 2019 frá Karli Frímannssyni sviðsstjóra fræðslusviðs þar sem óskað er eftir undanþágu frá verklagsreglum Akureyrarbæjar um auglýsingar starfa vegna ráðninga nemenda í leikskólakennarafræðum í launaða starfsþjálfun til eins árs.
Kjarasamninganefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við bæjarráð að framlögð tillaga að breytingum á verklagsreglum um auglýsingar starfa verði samþykkt.

2.Timabundin viðbótarlaun

Málsnúmer 2019050655Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 31. maí 2019 frá Eyrúnu Skúladóttur skólastjóra Glerárskóla vegna greiðslu tímabundinna viðbótarlauna (TV eininga) samkvæmt heimildarákvæði í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag grunnskólakennara.
Kjarasamninganefnd hafnar erindinu. Akureyrarbær hefur ekki nýtt heimildarákvæði kjarasamnings Félags grunnskólakennara um tímabundin viðbótarlaun frekar en önnur sveitarfélög.

3.Mat á fagaldri - BHM

Málsnúmer 2019060130Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga þess efnis að veitt verði tímabundin heimild til breytingar á verklagi við mat á fagaldri tilgreinda starfa starfsmanna í aðildarfélögum BHM.
Kjarasamninganefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu um að veitt verði tímabundin heimild til að meta starfsreynslu hjá Akureyrarbæ í störfum í Kili sem að umtalsverðum hluta innihalda sömu verkefni og sérfræðistörf í BHM til fagaldurs samkvæmt kjarasamningum BHM og SNS að því skilyrði uppfylltu að starfsmaður hafi lokið háskólanámi sem nýttist í viðkomandi starfi í Kili, áður en hann hóf störf.

4.Stjórnendaálag deildarstjóra

Málsnúmer 2017010004Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 26. apríl 2019.

Umfjöllun um endurskoðun á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra hjá Akureyrarbæ.
Unnið að breytingum á reglum og afgreiðslu frestað þar sem ekki liggur fyrir niðurstaða í starfsmati allra starfa í stéttarfélögum sem samið hafa um starfsmat.

5.Stjórnendaálag forstöðumanna

Málsnúmer 2017010057Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá 26. apríl 2019.

Umfjöllun um endurskoðun á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.
Unnið að breytingum á reglum og afgreiðslu frestað þar sem ekki liggur fyrir niðurstaða í starfsmati allra starfa í stéttarfélögum sem samið hafa um starfsmat.

Fundi slitið - kl. 13:23.