Kjarasamninganefnd

2. fundur 26. apríl 2019 kl. 09:30 - 11:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Umboðsmaður barna - upplýsingar um vinnuskóla sveitarfélaga

Málsnúmer 2018070563Vakta málsnúmer

Kynntar niðurstöður könnunar embættis umboðsmanns barna vegna vinnuskóla sveitarfélaga þar sem meðal annars er fjallað um vinnutíma og launakjör ungmenna.

2.Tímabundið tilraunaverkefni Leikskólanum Pálmholti

Málsnúmer 2015090067Vakta málsnúmer

Kynnt könnun á viðhorfum starfsmanna til tilraunaverkefnis um fyrirkomulag vinnutíma á Pálmholti.

Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri leikskólans Pálmholts og Áslaug Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri Pálmholts sátu fundinn.
Rætt um niðurstöðu könnnunarinnar og ákvörðun um framhald frestað.

3.Starfsmat aðildarfélaga BHM - framkvæmd 2019

Málsnúmer 2019020021Vakta málsnúmer

Umfjöllun um niðurstöður og innleiðingu starfsmats aðildarfélaga BHM sem samið hafa um starfsmat í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að framlögð tillaga verði samþykkt en verði tekin til endurskoðunar þegar nýir kjarasamningar liggja fyrir.

4.Stjórnendaálag forstöðumanna

Málsnúmer 2017010057Vakta málsnúmer

Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

5.Stjórnendaálag deildarstjóra

Málsnúmer 2017010004Vakta málsnúmer

Unnið að tillögu að breytingum á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra hjá Akureyrarbæ.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

6.Vísindasjóður tónlistarkennara

Málsnúmer 2019040387Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 3. apríl 2019 vegna skipunar tveggja fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Vísindasjóðs tónlistarkennara í Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu.
Kjarasamninganefnd samþykkir að Gunnar Gíslason og Guðrún Karitas Garðarsdóttir verði fulltrúar Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 11:50.