Kjarasamninganefnd

1. fundur 11. febrúar 2019 kl. 13:00 - 14:12 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Reglur um símenntun starfsfólks - endurskoðun 2018

Málsnúmer 2018110064Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að endurskoðun á Reglum um símenntun starfsfólks Akureyrarbæjar sem samþykkt var á fundi fræðslunefndar 4. febrúar 2019.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu fræðslunefndar og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

2.Endurskoðun á samþykkt um námsleyfi sérmenntaðs starfsfólks

Málsnúmer 2018100268Vakta málsnúmer

Lögð fyrir tillaga að breytingum á Samþykkt um styrki til námsleyfa sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar sem samþykkt var á fundi fræðslunefndar 4. febrúar 2019.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu fræðslunefndar og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

3.Verklagsreglur um auglýsingar starfa og tímabundnar ráðningar starfsfólks Akureyrarbæjar 2019

Málsnúmer 2019010259Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga að breytingum á núgildandi verklagsreglum um auglýsingar starfa og tímabundnar ráðningar hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.
Gunnar Gíslason mætti á fund nefndarinnar kl. 13:30.

4.Starfsmat aðildarfélaga BHM - framkvæmd 2019

Málsnúmer 2019020021Vakta málsnúmer

Kynnt staða vinnu við innleiðingu starfsmats hjá þeim aðildarfélögum BHM sem samið hafa um starfsmat í kjarasamnningum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Ítarlegar upplýsingar um starfsmat sveitarfélaga má nálgast á www.starfsmat.is.

5.Greiðslur fyrir akstur í þágu vinnuveitanda

Málsnúmer 2018010334Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á verklagsreglum Akureyrarbæjar um greiðslur fyrir akstur í þágu vinnuveitanda.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.

6.Búsetusvið - breyting á skipuriti

Málsnúmer 2019010260Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá bæjarráðs 7. febrúar 2019.

Liður 1 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 6. febrúar 2018:

Lagt er fyrir minnisblað frá Laufeyju Þórðardóttur settum sviðsstjóra búsetusviðs þar sem beðið er um breytingu á skipuriti til að ráða nýjan forstöðumann.

Velferðarráð samþykkir breytingu á skipuriti og vísar málinu til bæjarráðs.



Bæjarráð samþykkir breytingu á skipuriti búsetusviðs enda rúmist hún innan fjárhagsáætlunar og vísar málinu til kjarasamninganefndar til afgreiðslu.
Kjarasamninganefnd staðfestir að nýtt starf forstöðumanns þjónustu við börn, á búsetusviði, uppfyllir skilyrði reglna Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags forstöðumanna.

Fundi slitið - kl. 14:12.