Kjarasamninganefnd

2. fundur 02. mars 2018 kl. 11:30 - 12:07 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Kjarasamningar við aðildarfélög BHM og önnur háskólafélög

Málsnúmer 2016040008Vakta málsnúmer

Kynnt staða vinnu Akureyrarbæjar og annarra sveitarfélaga við starfsmat sem á samkvæmt kjarasamningum aðildarfélaga BHM og nokkurra annara háskólafélaga að koma til framkvæmda 1. júní 2018.

2.Endurskoðun á samkomulagi vegna starfsmanna í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi

Málsnúmer 2018020574Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á samkomulagi dagsett 31. október 2006 milli Einingar-Iðju og Akureyrarbæjar vegna starfsmanna í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu og á ótímabundun ráðningarsamningi hjá Plastiðjunni- Bjargi Iðjulundi.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til við bæjarráð að hún verði samþykkt með gildistíma frá 1. janúar 2018

3.Launastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018020573Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að mótun heildstæðrar launastefnu Akureyrarbæjar sem hluta af aðgerðum vegna fyrirhugaðrar Jafnlaunavottunar hjá sveitarfélaginu.
Kjarasamninganefnd samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að hefja vinnu við mótun launastefnu Akureyrarbæjar.

4.Launaþróunartrygging samkvæmt samkomulagi aðila vnnumarkaðarins

Málsnúmer 2018030034Vakta málsnúmer

Kynnt yfirlýsing undirrituð 1. mars 2018 um útfærslu launatryggingar fyrir tímabiið 2013-2017 samkvæmt rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins.

Fundi slitið - kl. 12:07.