Kjarasamninganefnd

4. fundur 12. september 2016 kl. 10:00 - 10:30 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Stjórnendaálag - endurskoðun verklagsreglna

Málsnúmer 2016050132Vakta málsnúmer

Reglur Akureyrarbæjar um stjórnendaálag samþykktar í bæjarráði 2. september sl. lagðar fram til kynningar ásamt yfirliti dagsett 1. september 2016.

2.Stjórnendaálag - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2016050064Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 6. maí 2016 frá Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi varðandi stjórnendaálag í starfi forstöðumanns tæknideildar sem frestað var á fundi kjarasamninganefndar 6. maí sl.
Kjarasamninganefnd getur ekki orðið við erindinu með vísan til reglna Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.

Fundi slitið - kl. 10:30.