Íþróttaráð

171. fundur 19. ágúst 2015 kl. 14:15 - 15:52 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jónasson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Birna Baldursdóttir L-lista mætti til fundar kl. 15:08.

1.Grímsey - beiðni um sparkvöll í Grímsey

Málsnúmer 2015060187Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 26. júní 2015 vísaði stjórn Fasteigna Akureyrbæjar málinu til umfjöllunar í íþróttaráði. Erindið er frá 20. fundi hverfisráðs Grímeyjar dagsett 22. apríl 2015.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Íþróttaráð mun hafa erindið til hliðsjónar við gerð langtímaáætlunar íþróttamannvirkja.

2.Kraftlyftingafélag Akureyrar og Íþróttafélagið Draupnir - framtíðarhúsnæði

Málsnúmer 2015070094Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá formanni ÍBA dagsett 9. júní 2015 þar sem óskað er eftir að íþróttaráð skoði möguleika á kaupum á framtíðarhúsnæði fyrir Draupni og KFA.
Erindið lagt fram til kynningar. Íþróttaráð mun í framhaldinu funda með hlutaðeigandi aðilum.

3.Jafnréttisstefna 2015-2019

Málsnúmer 2015060217Vakta málsnúmer

Á fundi sínum þann 11. júlí 2015 vísaði samfélags- og mannréttindaráð drögum að jafnréttisstefnu til umsagnar hjá deildum og nefndum Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð gerir engar athugasemdir.

4.Stjórnun og umsjón íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015080073Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar og umræðu hugmyndir um breytingu á stjórnun íþróttamiðstöðvar Giljaskóla og íþróttamiðstöðvar Glerárskóla.

5.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 24. júní 2015 um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir við sundlaugarsvæðið. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísaði málinu til umfjöllunar í íþróttaráði á fundi sínum 26. júní 2015.

6.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar og umræðu forsendur fjárhagsáætlunar íþróttamála fyrir starfsárið 2016.

Fundi slitið - kl. 15:52.