Íþróttaráð

163. fundur 05. febrúar 2015 kl. 14:00 - 15:50 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jónasson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá
Guðrún Þórsdóttir V-lista mætti ekki né varamaður hennar.

1.Líkamsræktin Bjarg - frístundastyrkur Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015020021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. janúar 2015 frá Ólafi Ó. Óskarssyni f.h. Líkamsræktarinnar Bjargs þar sem óskað er eftir að Bjarg fá að taka á móti frístundastyrk Akureyrarbæjar fyrir námskeið 12-17 ára unglinga.
Íþróttaráð samþykkir erindið og heimilar Bjargi að taka á móti frístundastyrk fyrir 12 vikna námskeið 12-17 ára unglinga.

2.Kvennalandsleikur í handbolta til Akureyrar

Málsnúmer 2015020023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2014 frá Jóni Óskari Ísleifssyni þar sem óskað er eftir aðkomu Akureyrarbæjar við að fá kvennalandsleik í handknattleik til Akureyrar.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

3.Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema - Akureyri

Málsnúmer 2014120009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu samanburður á hluta af niðurstöðum úr könnunninni 'Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema'. Upplýsingar úr könnuninni tengdum nemendum á Akureyri árið 2010 og 2014 bornar saman.

4.Samþykktir fastanefnda - endurskoðun

Málsnúmer 2013060144Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir íþróttaráð.
Íþróttaráð samþykkir drög að Samþykkt fyrir íþróttaráð. Samþykktin send til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.

5.Starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018

Málsnúmer 2014080084Vakta málsnúmer

Umræður og vinna við starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018 með tilliti til íþróttastefnu Akureyrarbæjar og langtímaáætlunar íþróttaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:50.