Íþróttaráð

160. fundur 04. desember 2014 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jónasson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá
Ólína Freysteinsdóttir S-lista mætti í forföllum Árna Óðinssonar.
Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista mætti ekki til fundar og ekki varamaður hennar.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda, frístundastyrkur, tómstundaáv

1.Fundaáætlun íþróttaráðs

Málsnúmer 2013010128Vakta málsnúmer

Drög að fundaáætlun íþróttaráðs vetur, vor og sumar 2015 lögð fram.

Íþróttaráð samþykkir fundaáætlun fyrir janúar til ágúst 2015.

2.Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema - Akureyri

Málsnúmer 2014120009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar og umræðu hluti af niðurstöðum tengdum nemendum á Akureyri úr könnunninni "Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema" sem var lögð fyrir í öllum grunnskólum landsins í byrjun árs 2014.

3.Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar

Málsnúmer 2012100168Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur íþróttafélaga 2013-2014 sem eru með rekstrarsamning við Akureyrarbæ.
Lagt fram til kynningar.

 

4.Íþróttabandalag Akureyrar - íþróttasaga Akureyrar

Málsnúmer 2013070154Vakta málsnúmer

Erindi 2. desember 2014 frá stjórn ÍBA þar sem óskað er eftir þátttöku Akureyrarbæjar í fjármögnun á ritun íþróttasögu Akureyrar. Sambærilegt erindi var tekið fyrir á fundi íþróttaráðs 22. ágúst 2013. Síðan þá hafa forsendur fjármögnunar verkefnsins breyst.

Íþóttaráð telur mikilvægt að hefja vinnu við ritun íþróttasögu Akureyrar. Íþróttaráð vísar erindinu til bæjarráðs og felur formanni að fylgja málinu eftir í bæjarráði.

5.Skautafélag Akureyrar - vegna umsóknar Krulludeildar til Alþjóðlega Krullusambandsins

Málsnúmer 2014120015Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. desember 2014 frá formanni ÍBA fyrir hönd Krulludeildar SA þar sem óskað er eftir því að bæjaryfirvöld gefi vilyrði fyrir lóð fyrir krulluaðstöðu og stuðningsyfirlýsingu frá Akureyrarbæ vegna verkefnisins.

Íþróttaráð hefur móttekið erindið og frestar afgreiðslu málsins.

6.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda, frístundastyrkur, tómstundaávísun

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. desember 2014 frá Þóreyju Árnadóttur þar sem óskað er undanþágu samanber 6. gr. úthlutunarreglna íþróttaráðs um frístundastyrki.

Íþróttaráð frestar erindinu.

7.Starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018

Málsnúmer 2014080084Vakta málsnúmer

Umræður og vinna við starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018 með tilliti til íþróttastefnu Akureyrarbæjar.

 

 

Birna Baldursdóttir L-lista vék af fundi 15:46.

Fundi slitið - kl. 16:00.