Íþróttaráð

146. fundur 20. febrúar 2014 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Páll Jóhannesson
  • Dýrleif Skjóldal áheyrnarfulltrúi
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013

Málsnúmer 2012080030Vakta málsnúmer

Fjárhagsyfirlit íþróttamála fyrir rekstrarárið 2013 lagt fram til kynningar.

2.Sundlaugar Akureyrar - endurbætur og framtíðarsýn

Málsnúmer 2012020045Vakta málsnúmer

Íþróttaráð skipaði á fundi sínum 22. mars 2012 tíu manna vinnuhóp sem vinna skyldi tillögu um stefnumótun, endurbætur, viðhald og framkvæmdir í sundlaugum bæjarins á næstu árum. Vinnuhópurinn hefur komið sér saman um að sex fulltrúar úr vinnuhópnum skipi minni vinnuhóp vegna endurnýjunar rennibrautar í Sundlaug Akureyrar.

Íþróttaráð tilnefnir Erling Kristjánsson í vinnuhóp vegna endurnýjunar rennibrautar í Sundlaug Akureyrar.

3.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun samninga fyrir árin 2012-2015

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Golfklúbb Akureyrar.

4.Rekstrarsamningur við Skíðafélag Akureyrar 2012-2014

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Umræður um úthlutun vetrarkorta í Hliðarfjall skv. samningi við Skíðafélag Akureyrar.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdarstjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 16:00.