Íþróttaráð

145. fundur 06. febrúar 2014 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þuríður Árnadóttir
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá

1.Gönguskíðabrautin - gjaldtaka

Málsnúmer 2014010328Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 23. janúar 2014, sem bæjarráð vísaði á fundi sínum 30. janúar 2014 til íþróttaráðs:
Haukur Ívarsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa.
Ræddi gjaldtöku í gönguskíðabrautina. Hann spurðist einfaldlega fyrir um hverju þessi gjaldtaka sætti og hvaða rök væru á bak við ákvörðunina.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að svara erindinu.

Ragnheiður Jakobsdóttir D-lista mætti til fundar kl. 14:11.

2.Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar

Málsnúmer 2012100168Vakta málsnúmer

Ársreikningur Bílaklúbbs Akureyrar fyrir árið 2013 lagður fram til kynningar.

3.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun vegna áranna 2014 og 2015

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Hestamannafélagið Létti.

Íþróttaráð samþykkir samninginn.

4.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun vegna áranna 2014 og 2015

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Skautafélag Akureyrar.

Íþróttaráð samþykkir samninginn.

Örvar Sigurgeirsson V-lista mætti til fundar kl. 15:06.

5.Ungmennaráð - starfsemi

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Erindi dags. 6. febrúar 2014 frá Ungmennaráði Akureyrar þar sem óskað er eftir aðstöðu í Glerárlaug einn eftirmiðdag í febrúar til að halda sundlaugardiskó fyrir nemendur í 5.- 7. bekk.

Íþróttaráð fagnar frumkvæði ungmennaráðs.

Íþróttaráð samþykkir erindið og felur forstöðumanni íþróttamála og formanni íþróttaráðs að vinna málið áfram.

Fundi slitið - kl. 16:00.