Íþróttaráð

144. fundur 16. janúar 2014 kl. 14:00 - 15:35 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri - afreksíþróttasvið

Málsnúmer 2014010136Vakta málsnúmer

Bjarni Jóhannsson framhaldsskólakennari kynnti afreksíþróttasvið sem er nýtt námsframboð í smíðum í MA og VMA.

Íþróttaráð þakkar Bjarna Jóhannssyni fyrir kynninguna.

2.Sundlaug Akureyrar - opnunartímar

Málsnúmer 2012020044Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig tókst til með opnun í tilraunaskyni í Sundlaug Akureyrar á annan í jólum 2013 sbr. bókun íþróttaráðs frá 21. mars 2013.

Íþróttaráð samþykkir að hafa opið í Sundlaug Akureyrar á annan í jólum framvegis.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála og forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar að kostnaðargreina hugmyndir um að hafa Sundlaug Akureyrar opna 1. maí, 17. júní og næturopnun í kringum Jónsmessu.

3.Hlíðarfjall - deiliskipulag skíðasvæðis (SN070129)

Málsnúmer 2010030004Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd dags. 5. desember 2013 þar sem óskað er umsagnar á tillögu að deiliskipulagi fyrir Hlíðarfjall, skíðasvæði, Akureyri.

Íþróttaráð gerir ekki athugasemdir við tillögu að deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í Hlíðarfjalli.

4.Heiðursviðurkenningar íþróttaráðs

Málsnúmer 2014010137Vakta málsnúmer

Tilnefningar stjórnar Afrekssjóðs til heiðursviðurkenninga íþróttaráðs 2013.

Íþróttaráð samþykkir tilnefningar stjórnar Afrekssjóðs til heiðursviðurkenninga.

5.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi á Akureyri vegna tilkomu rafræns kerfis.

Íþróttaráð samþykkir breytingar á reglum um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Ragnheiður Jakobsdóttir D-lista vék af fundi kl. 15:20.

Fundi slitið - kl. 15:35.