Íþróttaráð

143. fundur 05. desember 2013 kl. 14:00 - 15:52 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013

Málsnúmer 2012080030Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir stöðuna á rekstri íþróttamála starfsárið 2013.

2.ÍBA f.h. KA vegna útiaðstöðu fyrir tennis

Málsnúmer 2013030127Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 12. mars 2013 frá Íþróttabandalagi Akureyrar f.h. Knattspyrnufélags Akureyrar sem óskar eftir útiaðstöðu til æfinga og keppni í tennis. Erindið var á dagskrá íþróttaráðs 21. mars sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu en bendir Knattspyrnufélagi Akureyrar á að senda erindið til skipulagsdeildar og Fasteigna Akureyrarbæjar.

3.Kraftlyftingafélag Akureyrar - ósk um rekstrarsamning

Málsnúmer 2013070150Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 7. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem ÍBA telur æskilegt að orðið verði við ósk Kraftlyftingafélags Akureyrar um rekstrarsamning. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 21. ágúst sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu, en málið verður tekið upp í samningaviðræðum um endurnýjun samskiptasamnings við ÍBA á vormánuðum.

4.Íþróttafélagið Draupnir - ósk um rekstrarsamning

Málsnúmer 2013070151Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 8. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem ÍBA telur æskilegt að orðið verði við ósk Íþróttafélagsins Draupnis um rekstrarsamning. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 21. ágúst sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu, en málið verður tekið upp í samningaviðræðum um endurnýjun samskiptasamnings við ÍBA á vormánuðum.

5.Nökkvi, félag siglingarmanna Akureyri - ósk um fjárstuðning til uppbyggingar og viðhalds öryggismála

Málsnúmer 2013090014Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi sent 2. september 2013, frá Rúnari Þór Björnssyni formanni Nökkva þar sem óskað er eftir fjárstuðningi að upphæð kr. 5.500.000 til uppbyggingar og viðhalds öryggismála hjá klúbbnum. Erindið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 5. september sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar 2014.

6.Afrekssjóður Akureyrar

Málsnúmer 2012100159Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um vinnu stjórnar Afrekssjóðs Akureyrar við umsóknir í sjóðinn 2013.

7.Afrekssjóður Akureyrar

Málsnúmer 2012100159Vakta málsnúmer

Á fundi stjórnar Afrekssjóðs Akureyrar þann 21. nóvember sl. var umsóknum um styrki vegna hópíþrótta kvenna vísað til afgreiðslu hjá íþróttaráði. Umsóknir frá Íþróttafélaginu Þór vegna reksturs körfuknattleiksliðs kvenna, frá Knattspyrnufélagi Akureyrar vegna reksturs blakliðs kvenna og vegna handboltaliðs kvenna hjá KA/Þór.

Íþróttaráð samþykkir styrkumsóknirnar í samræmi við umræður á fundinum og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna að reglugerð um úthlutun styrkjanna.

8.Sundlaugar Akureyrar - endurbætur og framtíðarsýn

Málsnúmer 2012020045Vakta málsnúmer

Íþróttaráð skipaði á fundi sínum 22. mars 2012 vinnuhóp sem vinna skyldi tillögu um stefnumótun, endurbætur, viðhald og framkvæmdir í sundlaugum bæjarins á næstu árum. Greint frá stöðu verksins ásamt því sem lagður var fram listi yfir nauðsynlegar endurbætur á Sundlaug Akureyrar sem ekki geta beðið þess að stefnumótunarvinnu ljúki.

Íþróttaráð beinir þeirri ósk til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar að þau atriði sem fram koma á listanum verði nú þegar sett á viðhaldsáætlun.

9.Starfsáætlun íþróttaráðs

Málsnúmer 2013010128Vakta málsnúmer

Drög að fundaáætlun íþróttaráðs vetur og vor 2014 lögð fram.

Framlögð fundaáætlun íþróttaráðs samþykkt.

10.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012-2013

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Erindi dags. 3. desember 2013 frá stjórn ÍBA þar sem bandalagið óskar eftir því að fulltrúar Hestamannafélagsins Léttis og ÍBA fái að mæta á fund íþróttaráðs, þar sem farið yrði yfir endurnýjun rekstrarsamnings milli Léttis og Akureyrarbæjar.
Andrea Þorvaldsdóttir formaður Léttis, Þröstur Guðjónsson formaður ÍBA, Margrét Ólafsdóttir stjórnarmaður ÍBA og Ármann Ketilsson stjórnarmaður ÍBA sátu fundinn undir þessum lið.

Umræður um samningaviðræður milli Léttis og Akureyrarbæjar. Íþróttaráð þakkar fulltrúa Hestamanafélagsins Léttis og fulltrúum ÍBA fyrir komuna á fundinn

Árni Óðinsson S-lista vék af fundi kl. 15:40.

Fundi slitið - kl. 15:52.