Íþróttaráð

141. fundur 07. nóvember 2013 kl. 14:00 - 15:50 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Helga Eymundsdóttir
  • Erlingur Kristjánsson
  • Árni Óðinsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Veitingar á fundum íþróttaráðs

Málsnúmer 2013110003Vakta málsnúmer

Tillaga um að ekki verði framvegis boðið upp á aðrar veitingar á fundum íþróttaráðs en kaffi, te og vatn.

Íþróttaráð samþykkir tillöguna.

2.Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013

Málsnúmer 2012080030Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun íþróttamála starfsárið 2014 tekin til endurskoðunar með tilliti til hagræðingarkröfu.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdarstjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.

3.Afrekssjóður Akureyrar

Málsnúmer 2012100159Vakta málsnúmer

Umræður vegna styrkveitinga árið 2013 og 2014.

4.Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar

Málsnúmer 2012100168Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit frá ÍBA yfir rekstur aðildarfélaga ÍBA árið 2012 og fjárhagsáætlanir fyrir árið 2014.

5.ÍBA - framtíðasýn ÍBA og aðildarfélaga 2014-2020

Málsnúmer 2013100221Vakta málsnúmer

Erindi dags. 9. október 2013 frá stjórn ÍBA varðandi framtíðarsýn ÍBA og aðildarfélaga 2014-2020 vegna langtímaáætlunarvinnu ÍRA.

6.ÍBA f.h. Íþróttafélagsins Akurs vegna útiaðstöðu fyrir bogfimi

Málsnúmer 2013030128Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju frá fundi íþróttaráðs 21. mars sl. erindi dags. 12. mars 2013 frá Íþróttabandalagi Akureyrar f.h. Íþróttafélagsins Akurs sem óskar eftir að komið verði upp útiaðstöðu fyrir æfingar og keppni í bogfimi.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

7.Skíðafélag Akureyrar - beiðni um stuðning vegna heimsókna 4. bekkja grunnskóla Akureyrar í Hlíðarfjall

Málsnúmer 2013100028Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju frá síðasta fundi íþróttaráðs erindi dags. 25. september 2013 frá stjórn Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir stuðningi vegna heimsókna 4. bekkja grunnskóla Akureyrar á vegum SKA í Hlíðarfjall.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

8.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Erindi dags. 10. október 2013 frá Heimi Bjarna Ingimarssyni eiganda fyrirtækisins HBI Vocalist studio ehf um að fyrirtækið fái að taka á móti tómstundaávísunum íþróttaráðs vegna söngskóla fyrirtækisins fyrir börn og unglinga.

Íþróttaráð samþykkir beiðni HBI Vocalist studio ehf um að fá að taka á móti tómstundaávísunum íþróttaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:50.