Íþróttaráð

140. fundur 17. október 2013 kl. 14:00 - 15:45 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Bílaklúbbur Akureyrar - umsókn um styrk vegna reksturs tjaldvæðis á Bíladögum 2013

Málsnúmer 2013090306Vakta málsnúmer

Erindi ódags. frá Einari Gunnlaugssyni formanni Bílaklúbbs Akureyrar þar sem farið er fram á styrk vegna reksturs tjaldvæðis á Bíladögum sem haldnir voru 14.- 17. júní sl.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

2.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Samkvæmt Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar skulu allar nefndir á vegum bæjarins vinna tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhagsáætlanagerð.
Tilraunaverkefni íþróttaráðs lagt fram til kynningar.

3.Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013

Málsnúmer 2012080030Vakta málsnúmer

Tillaga frá forstöðumanni íþróttamála um gjaldtöku í gönguskíðabrautinni í Hlíðarfjalli.

Íþróttaráð samþykkir að hefja gjaldtöku fyrir aðgang að gönguskíðabrautinni í Hlíðarfjalli veturinn 2013-2014.

Jón Einar Jóhannsson A-lista óskaði að eftirfarandi yrði bókað:

Ég fagna ákvörðuninni og hvet til hóflegrar gjaldtöku á árskortum í gönguskíðabrautina.

4.Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013

Málsnúmer 2012080030Vakta málsnúmer

Tillaga frá forstöðumanni íþróttamála um húsaleigu og húsaleigustyrk vegna afnota Skíðafélags Akureyrar af Strýtu.

Íþróttaráð samþykkir að veita Skíðafélagi Akureyrar húsaleigustyrk vegna afnota félagsins í Strýtu.

Forstöðumönnum Hlíðarfjalls og íþróttamála falið að vinna málið áfram.

5.Skíðafélag Akureyrar - beiðni um stuðning vegna heimsókna 4. bekkja grunnskóla Akureyrar í Hlíðarfjall

Málsnúmer 2013100028Vakta málsnúmer

Erindi dags. 25. september 2013 frá stjórn Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir stuðningi vegna heimsókna 4. bekkja grunnskóla Akureyrar á vegum SKA í Hlíðarfjall.

Íþróttaráð frestar afgreiðslu málsins og felur formanni og forstöðumanni íþróttamála að vinna nánar að málinu.

6.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012-2013

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi endurnýjun rekstrarsamninga við Skautafélag Akureyrar, Hestamannafélagið Létti og Golfklúbb Akureyrar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:45.