Íþróttaráð

136. fundur 22. ágúst 2013 kl. 14:00 - 16:10 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Páll Jóhannesson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Dýrleif Skjóldal áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá
Páll Jóhannesson S-lista mætti sem varamaður fyrir Árna Óðinsson.
Dýrleif Skjóldal V-lista mætti sem varamaður fyrir Örvar Sigurgeirsson.

1.Aðstaða til íþróttakennslu í grunnskólum Akureyrar

Málsnúmer 2013080167Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar B.Ed.-lokaverkefni Jóhannesar G. Bjarnasonar frá kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2013 varðandi aðstöðu til íþróttakennslu í grunnskólum Akureyrar. Jóhannes G. Bjarnason sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Jóhannesi G. Bjarnasyni fyrir kynninguna og heimsóknina.

2.Skíðaleiga í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2013080168Vakta málsnúmer

Erindi dags. 15. ágúst 2013 frá Guðmundi Karli Jónssyni forstöðumanni Skíðastaða í Hlíðarfjalli þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu fyrir skíðaleigu í Hlíðarfjalli til að geta haldið betur utan um reksturinn og skapað betri vinnuaðstöðu.
Guðmundur Karl sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð samþykkir erindið og óskar eftir að Fasteignir Akureyrarbæjar vinni málið áfram.

3.Fjárhagsáætlun 2014 - íþróttaráð

Málsnúmer 2013080071Vakta málsnúmer

Umræður og vinna vegna fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2014.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli og Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar sátu fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Guðmundi Karli og Elínu fyrir komuna.

4.Íþróttabandalag Akureyrar - íþróttasaga Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013070154Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 8. júlí 2013 frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi til að hefja vinnu við að skrifa og gefa út íþróttasögu Akureyrarbæjar.

Íþróttaráð tekur vel í erindið og vísar því til bæjarráðs.

5.Íþróttadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030343Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.

Fundi slitið - kl. 16:10.