Íþróttaráð

133. fundur 06. júní 2013 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Hjólað í vinnuna 2013

Málsnúmer 2013040119Vakta málsnúmer

Á fundi sínum 18. apríl 2013 samþykkti íþróttaráð að veita viðurkenningar til þeirra vinnustaða Akureyrarbæjar sem stæðu sig best í átakinu Hjólað í vinnuna.

Íþróttaráð fagnar góðri þátttöku Akureyringa í átakinu.

Íþróttaráð hyggst veita Síðuskóla og Hlíð viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í átakinu Hjólað í vinnuna 2013.

2.Hlíðarfjall - rekstur 2009-2012

Málsnúmer 2012030169Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit Karls Guðmundssonar verkefnastjóra innra eftirlits dags. 17. maí 2013 um rekstur Hlíðarfjalls á árunum 2009-2012.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdarstjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Karli fyrir samantektina.

3.Íþróttadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030343Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Aðalsteinn Sigurgeirsson, Elín H. Gísladóttir og Samúel Jóhannsson forstöðumenn íþróttamannvirkja mættu einnig á fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Aðalsteini, Elínu og Samúel fyrir komuna.

Fundi slitið - kl. 16:00.