Íþróttaráð

130. fundur 18. apríl 2013 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá
Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi A-lista boðaði forföll sem og varamaður hans.

1.Hjólað í vinnuna 2013

Málsnúmer 2013040119Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. 10. apríl 2013 frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands þar sem vakin er athygli á vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna sem fer fram dagana 8.- 28. maí nk.

Íþróttaráð fagnar átakinu Hjólað í vinnuna og að almenn þátttaka hafi verið að aukast á undanförnum árum.

Íþróttaráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga á Akureyri til þátttöku í verkefninu og taka þannig þátt í að auka almenna lýðheilsu Akureyringa.

Íþróttaráð hyggst veita viðurkenningar til þeirra vinnustaða Akureyrarbæjar sem standa sig best.

2.ÍRA - úthlutun þjálfara- og námskeiðsstyrkja

Málsnúmer 2013020202Vakta málsnúmer

Drög að viðmiðunar- og vinnureglum vegna úthlutunar námskeiðs- og þjálfarastyrkja lögð fram til kynningar.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð viðmið og vinnureglur.

3.Íþróttadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030343Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.
Erlingur Kristjánsson B-lista vék af fundi kl. 15:51.

4.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012-2013

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að samningi við Knattspyrnufélag Akureyrar og vísar samningsdrögum til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 16:00.