Íþróttaráð

126. fundur 21. febrúar 2013 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þóroddur Hjaltalín
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá

1.Heimsóknir grunnskóla á Akureyri í Hlíðarfjall

Málsnúmer 2013020196Vakta málsnúmer

Fyrirspurn frá Guðmundi Karli Jónssyni forstöðumanni Hlíðarfjalls um það hver skuli bera kostnað af heimsóknum grunnskóla á Akureyrar í Hlíðarfjall.
Guðmundur Karl mætti á fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð samþykkir að bjóða grunnskólum á Akureyri á skíði í Hlíðarfjalli veturinn 2013 í nánara samstarfi við forstöðumann Hlíðarfjalls.

Íþróttaráð samþykkir að stofna vinnuhóp skipaðan af Tryggva Þór Gunnarssyni formanni íþróttaráðs, Árna Óðinssyni og aðila frá skólanefnd.

Íþróttaráð óskar eftir tilnefningu skólanefndar á aðila í vinnuhópinn. Forstöðumaður íþróttamála og fræðslustjóri skulu vinna með vinnuhópnum. Vinnuhópurinn skal skila af sér eigi síðar en 1. maí 2013 tillögum að því hvernig kostnaður við heimsóknir grunnskóla á Akureyri í Hlíðarfjall skiptist niður milli hluteigandi aðila.

Íþróttaráð þakkar Guðmundi Karli fyrir komuna á fundinn.  

2.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Umræða um rafrænt skráningar- og þjónustukerfi sem heldur utan um hvatapeninga og þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Íþróttaráð stefnir að því að taka upp rafrænt skráningar- og þjónustukerfi sem heldur utan um hvatapeninga og þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Unnið verður að málinu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2014.

Forstöðumanni íþróttamála falið að vinna málið áfram.

3.Sundlaug Akureyrar - afsláttur fyrir hópa

Málsnúmer 2012020042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar hvernig til hefur tekist fyrsta mánuðinn með tilboð og afslætti fyrir hópa og fyrirtæki í Sundlaugar Akureyrar.

4.Fjárhagsáætlun 2012 - íþróttaráð

Málsnúmer 2011080055Vakta málsnúmer

Fjárhagsyfirlit fyrir árið 2012 lagt fram til kynningar.

5.Úthlutun þjálfara- og námskeiðsstyrkja ÍRA

Málsnúmer 2013020202Vakta málsnúmer

Drög að endurskoðuðum viðmiðunar- og vinnureglum vegna þjálfara- og námskeiðsstyrkja ÍRA lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.