Íþróttaráð

99. fundur 13. október 2011 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Aðildarfélög ÍBA - áætlanir fyrir árið 2012 og ársreikningar 2010

Málsnúmer 2011100034Vakta málsnúmer

Lagðar fram rekstraráætlanir aðildarfélaga ÍBA fyrir árið 2012 ásamt yfirliti rekstrar fyrir 2010.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

2.Fjárhagsáætlun 2012 - íþróttaráð

Málsnúmer 2011080055Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun íþróttaráðs fyrir starfsárið 2012. Í áætluninni er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði kr. 1.255.199.279 sem er kr. 61.206.279 hærra en rammi íþróttaráðs gerir ráð fyrir. Gert er ráð fyrir því í áætluninni að kr. 22.966.000 sem eru umfram ramma vegna húsaleigu, kr. 7.582.162 sem eru umfram ramma vegna orkukostnaðar, kr. 25.000.000 vegna uppbyggingarsamninga við Golfklúbb Akureyrar og kr. 9.000.000 vegna uppbyggingarsamnings við Íþróttafélagið Þór, verði bætt við rammann. Þá er gert ráð fyrir því í áætluninni að tekjur dragist saman í Hlíðarfjalli um kr. 25.249.435 frá áætlun ársins 2011 og samtals í rekstri íþróttadeildar frá áætlun 2011 um kr. 18.740.148. Í áætluninni er gert ráð fyrir 5-7% leiðréttingu á gjaldskrám mannvirkja íþróttadeildar.

Íþróttaráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun 2012 og vísar þeim til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 16:00.