Íþróttaráð

96. fundur 15. september 2011 kl. 14:00 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Atvinnuleitendur og sundstaðir

Málsnúmer 2009010201Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá Soffíu Gísladóttur forstöðumanni skrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra þess efnis hvort Akureyrarbær hyggist áfram veita atvinnuleitendum frían aðgang að Sundlaugum Akureyrarbæjar. Einnig lagt fram minnisblað frá Elínu H. Gísladóttur forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar þar sem farið er yfir heimsóknir atvinnuleitenda veturinn 2010 til 2011.

Íþróttaráð samþykkir að halda áfram með verkefnið á komandi vetri og veitir því Akureyringum sem skráðir eru að fullu sem atvinnuleitendur, frían aðgang í sundlaugar Akureyrarbæjar. Tilboð þetta gildir alla virka daga tímabilið 1. október 2011 til 15. maí 2012.

2.Fjárhagsáætlun 2012 - íþróttaráð

Málsnúmer 2011080055Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur fyrir fjárhagsáætlunarvinnu og unnið að gjaldskrárbreytingum fyrir starfsárið 2012.

3.Framkvæmdastjóri íþróttadeildar - uppsögn

Málsnúmer 2011080090Vakta málsnúmer

Kristinn H. Svanbergsson framkvæmdastjóri íþróttadeilar kynnti íþróttaráði uppsögn sína sem framkvæmdastjóri íþróttadeildar. Starfslok eru áætluð 30. nóvember 2011.

Íþróttaráð þakkar Kristni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.


4.Íþróttafélagið Þór - kalskemmdir

Málsnúmer 2011090050Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. september 2011 frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar, sem hann óskar eftir fjárframlagi frá Akureyrarbæ vegna mjög slæms ásigkomulags knattspyrnuvalla félagsins af völdum kalskemmda sem orsakaði mikinn kostnað við hirðingu þeirra sumarið 2011.

Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.

Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.

Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Íþróttafélaginu Þór verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

5.Íþróttafélagið Þór - styrkbeiðni vegna kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu - Evrópukeppni

Málsnúmer 2011090051Vakta málsnúmer

Erindi dags. 13. september 2011 frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra Þórs, þar sem óskað er eftir 300.000 kr. styrk frá Akureyrarbæ vegna þátttöku kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu í Evrópukeppni í lok september og byrjun október.
Nói Björnsson formaður íþróttaráðs vék af fundi undir þessum lið.

Íþróttaráð fagnar góðum árangri kvennaliðs Þórs/KA. Ráðið hefur ekki fjárhagslegt svigrúm innan samþykkts ramma til að veita Íþróttafélaginu Þór stuðning vegna verkefnisins en óskar eftir því við bæjarráð að skoða mögulegan stuðning við kvennalið Þórs/KA.

Fundi slitið - kl. 15:45.