Íþróttaráð

90. fundur 14. apríl 2011 kl. 13:15 - 15:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Starfsáætlun íþróttaráðs starfsárin 2011-2015

Málsnúmer 2011010053Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun íþróttaráðs 2011-2015.

Íþróttaráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að starfsáætlun ráðsins fyrir starfsárin 2011 til 2015.

2.Skautahöllin á Akureyri - orkukostnaður

Málsnúmer 2011040055Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri íþróttadeildar lagði fram yfirlit yfir orkukostnað í Skautahölinni 2003-2010 þar sem fram kemur að kostnaður hefur aukist á undanförnum árum umfram framlög Akureyrarbæjar til rekstrarins.

Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að samþykkt verði aukafjárveiting til Skautafélags Akureyrar að upphæð kr. 3.800.000 sem notist til greiðslu á uppsafnaðri skuld Skautahallarinnar við Norðurorku um áramótin 2010/2011.

3.Íþróttabandalag Akureyrar - ósk um viðræður

Málsnúmer 2011040056Vakta málsnúmer

Erindi dags. 7. apríl 2011 frá Þresti Guðjónssyni formanni Íþróttabandalags Akureyrar þar sem óskað er eftir að hafnar verði viðræður við Fimleikafélag Akureyrar, Ungmennafélag Akureyrar, Sundfélagið Óðinn og Skíðafélag Akureyrar um nýja samninga við félögin.

Íþróttaráð óskar eftir frekari rökstuðningi og gögnum vegna reksturs ofangreindra íþróttafélaga og vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2012.

Fundi slitið - kl. 15:00.