Íþróttaráð

196. fundur 26. september 2016 kl. 12:30 - 15:30 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Arnar Þór Jóhannesson
  • Birna Baldursdóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Dagskrá
Árni Óðinsson S-lista boðaði forföll og Arnar Þór Jóhannesson mætti í hans stað.
Guðrún Þórsdóttir V-lista boðaði forföll og Alfa Dröfn Jóhannsdóttir mætti í hennar stað.

Jónas Björgvin Sigurbergsson Æ-lista mætti til fundar kl. 12:43.
Arnar Þór Jóhannesson S-lista mætti til fundar kl. 12:49.

1.Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð

Málsnúmer 2016050293Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun íþróttaráðs fyrir starfsárið 2017.

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar mætti á fundinn undir þessum lið.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að fjárhagsáætlun íþróttamála og gjaldskrá fyrir íþróttamannvirki fyrir starfsárið 2017 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2018-2020 og vísar drögunum til bæjarráðs.



Íþróttaráð óskar eftir viðauka í fjárhagsáætlunarramma ráðsins til að geta endurnýjað snjótroðara í Hlíðarfjalli árið 2017. Íþróttaráð óskar eftir kr. 60.000.000 framlagi bæjarráðs til að geta endurnýjað búnaðinn.



Íþróttaráð óskar eftir því við stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar að á árinu 2017 verði farið í endurbætur á aðstöðu í íþróttahúsi Laugargötu og að aðstöðunni verði breytt til að mæta nýjum þörfum, að íþróttagólfinu í íþróttamiðstöð Glérárskóla verði endurnýjað, að anddyri að íþróttamiðstöð Giljaskóla verði stækkað, að lokið verði við uppsetningu á nýrri rennibraut við Sundlaug Akureyrar og að sett verði upp tjald til að tvískipta íþróttasal íþróttahúss Lundarskóla.



Íþróttaráð samþykkir endurskoðað framkvæmdayfirlit íþróttamála 2016-2021 og vísar því til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.



Íþróttaráð samþykkir tillögur að búnaðarkaupum fyrir árið 2017 í íþróttamannvirki bæjarins og vísar tillögunum til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.



Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að koma á framfæri þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir V-lista vék af fundi kl. 14:30.
Birna Baldursdóttir L-lista vék af fundi kl. 14:43.

Fundi slitið - kl. 15:30.