Íþróttaráð

188. fundur 17. mars 2016 kl. 14:00 - 16:30 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Birna Baldursdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Jónas Björgvin Sigurbersson Æ-lista boðaði forföll sem og varamaður hans.

Guðrún Þórsdóttir V-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá máliin Skautahöll-endurnýjun á svelli-aðkoma VMÍ og Hlíðarfjall-starfsemi og rekstur sem verði 7. log 8. liður á dagskrá og var það samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.

1.Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð

Málsnúmer 2014080009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt Karls Guðmundssonar yfir rekstur Sundlaugar Akureyrar 2008-2015. Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar mætti á fundinn undir þessum lið.

2.Golfklúbbur Akureyrar - veðsetning á golfskálanum á Jaðri

Málsnúmer 2016030024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar afgreiðsla bæjarráðs á erindi Golfklúbbs Akureyrar.

3.Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA

Málsnúmer 2015110251Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjun rekstrarsamninga við Þór og KA.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að samningum við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar og felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að ljúka samningaviðræðum við félögin í samræmi við umræður á fundinum.

4.Íþróttabandalag Akureyrar - samskipta- og samstarfssamningur Akureyrarbæjar og ÍBA

Málsnúmer 2015010126Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um vinnu við endurnýjun samskipta- og samstarfssamnings milli Akureyrarbæjar og ÍBA.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að vinna málið áfram.

5.Skíðalyfta í Hlíðarfjall

Málsnúmer 2016030107Vakta málsnúmer

Tekið fyrir ódagsett erindi frá Vinum Hlíðarfjalls um kaup á skíðalyftu.
Íþróttaráð þakkar Vinum Hlíðarfjalls áhugann og vinnuna sem þeir hafa sýnt uppbyggingu í Hlíðarfjalli.

Mikil vinna hefur verið í gangi í aðgerðarhópi um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar og á meðan á þeirri vinnu stendur hefur íþróttaráð ekki heimild til að bæta í rekstur Hlíðarfjalls.

Íþróttaráð vísar erindinu til bæjarráðs.

6.Sumarstarfsemi í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2016030001Vakta málsnúmer

Hugmyndir sem bárust um sumarstarfsemi í Hlíðarfjalli kynntar.
Íþróttaráð þakkar hugmyndasmiðum fyrir góðar og áhugaverðar tillögur.

Íþróttaráð hrósar Yrki Arkitektum fyrir flotta framtíðarsýn á svæðið.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að vinna áfram að brautargengi hugmynda Zalibunu um sleðabraut í Hlíðarfjalli.

7.Skautahöllin - endurnýjun á svelli - aðkoma VMÍ

Málsnúmer 2015020134Vakta málsnúmer

Íþróttaráð óskaði eftir því á fundi sínum 19. nóvember 2015 að VMÍ tæki þátt í uppbyggingu og framkvæmdum í Skautahöllinni. Svar stjórnar VMÍ dagsett 1. febrúar 2016 við ósk íþróttaráðs lagt fram til kynningar.
Íþróttaráð óskar eftir því að stjórn VMÍ endurskoði ákvörðun sína varðandi þátttöku VMÍ í uppbyggingu og framkvæmdum Akureyrarbæjar í Skautahöllinni.

8.Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur

Málsnúmer 2014050114Vakta málsnúmer

Umræður um rekstrarform Hlíðarfjalls.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að hefja undirbúning á úthýsingu rekstrar Hlíðarfjalls.

Fundi slitið - kl. 16:30.