Íþróttaráð

186. fundur 18. febrúar 2016 kl. 14:00 - 16:20 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Birna Baldursdóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá
Þórunn Sif Harðardóttir D-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir

Málsnúmer 2016020127Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Magnús Kristjánsson frá KPMG mættu á fundinn undir þessum lið og fóru yfir vinnu aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.

2.Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð

Málsnúmer 2014080009Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur íþróttamála árið 2015.

Lagðar fram til kynningar samantektir Karls Guðmundssonar verkefnastjóra yfir rekstur Hlíðarfjalls og íþróttahúsa 2009-2015.

Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls mætti á fundinn undir þessum lið.

3.Íþróttir og hreyfing í vetrarfríi

Málsnúmer 2016020029Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig tókst til með boð íþróttaráðs til grunn- og framhaldsskólanemenda um aðgang að Hlíðarfjalli og sundlaugum Akureyrar í vetrarfríi í síðustu viku.
Íþóttaráð fagnar góðri þátttöku þar sem um 100 börn mættu í Hlíðarfjall og rúmlega 200 börn mættu í sundlaugar Akureyrar í boði íþróttaráðs.

Íþróttaráð stefnir að því að gera þetta árlega.

4.Viðtalstími bæjarfulltrúa - sundlaugarmál

Málsnúmer 2016010212Vakta málsnúmer

Þann 4. febrúar 2016 vísaði bæjarráð 4. lið úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 28. janúar 2016 til íþróttaráðs:

Þórður Ármannsson, Kringlumýri 10, kom í viðtalstíma bæjarfulltrúa og lýsti yfir óánægju með að bærinn skuli fjárfesta í nýrri vatnsrennibraut í stað þess að byggja sundhöll. Telur að hagkvæmara hefði verið að byggja sundhöll því þá væri hægt að halda hér sundmót. Einnig lýsti Þórður yfir óánægju með aðstöðu fyrir fatlað fólk til sundiðkunar.
Íþróttaráð þakkar Þórði fyrir erindið og ábendinguna.

5.Hestamannfélagið Léttir - heimild til lántöku

Málsnúmer 2016020161Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Hestamannafélaginu Létti dagsett 15. febrúar 2016 þar sem óskað er eftir heimild til lántöku.
Íþróttaráð samþykkir erindið og formanni falið að vinna málið áfram.

6.Háskólinn á Akureyri - íþróttakennaranám

Málsnúmer 2016020168Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um fyrirhugað íþróttakennaranám við Háskólann á Akureyri.
Íþróttaráð tekur undir ályktun formannafundar ÍBA og fagnar fyrirhuguðu íþróttakennaranámi við Háskólann á Akureyri sem mun efla enn frekar íþróttastarf í bænum.

Íþróttaráð mun styðja við námið með samstarfi við Háskólann á Akureyri varðandi aðstöðu í íþróttamannvirkjum bæjarins.


7.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda - frístundastyrkur - tómstundaávísun

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Endurskoðun úthlutunarreglna frístundastyrks Akureyrarbæjar.
Frestað.

8.Hljóðvist í íþróttamannvirkjum

Málsnúmer 2015100029Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður úr hljóðvistarmælingum Vinnueftirlitsins sem gerðar voru í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar í nóvember 2015.
Frestað.

Fundi slitið - kl. 16:20.