Íþróttaráð

182. fundur 17. desember 2015 kl. 14:00 - 15:48 Íþróttahöllin
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Halldór Kristinn Harðarson
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Halldór Kristinn Harðarson L-lista mætti í forföllum Birnu Baldursdóttur.

1.Íþróttaráð - heimsóknir í íþróttamannvirki

Málsnúmer 2011040054Vakta málsnúmer

Skoðunarferð um Íþróttahöllina.
Íþróttaráð þakkar forstöðumanni Íþróttahallarinnar fyrir leiðsögn um svæðið.

2.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda - frístundastyrkur/tómstundaávísun

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Umræður um frístundastyrk fyrir árið 2016.
Íþróttaráð samþykkir að hækka frístundastyrk í kr. 16.000 frá og með 1. janúar 2016. Frístundastyrkur gildir fyrir börn á aldrinum 6-17 ára.

3.Fundaáætlun íþróttaráðs

Málsnúmer 2013010128Vakta málsnúmer

Drög að fundaáætlun íþróttaráðs vetur, vor og sumar 2016 lögð fram.
Íþróttaráð samþykkir fundaáætlun fyrir janúar til september 2016.

4.Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA

Málsnúmer 2015110251Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar staðan á samningaviðræðum.

Fundi slitið - kl. 15:48.