Íþróttaráð

180. fundur 19. nóvember 2015 kl. 14:05 - 15:33 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Ólína Freysteinsdóttir S-lista mætti í forföllum Árna Óðinssonar.

1.Vinir Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2011120027Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Vini Hlíðarfjalls.
Íþróttaráð samþykkir samningsdrögin og felur formanni og forstöðumanni íþróttamála að ganga frá samningnum.

2.Norðurlands Jakinn - aflraunamót 2016 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2015100156Vakta málsnúmer

Erindi í tölvupósti dagsett 26. október 2015 frá Magnúsi Ver Magnússyni fyrir hönd Félags íslenskra kraftamanna þar sem óskað er eftir styrk til að halda aflraunamótið Norðurlands Jakinn víðsvegar um Norðurland í ágúst 2016.
Íþróttaráð vísar erindinu til stjórnar Akureyrarstofu.

3.Skautahöllin - nýtt svell

Málsnúmer 2015020134Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar við nýja gólfplötu/svell í Skautahöll Akureyrar með tilliti til aðkomu VMÍ að verkinu.
Íþróttaráð óskar eftir því að stjórn Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands taki fjárhagslega þátt í uppbyggingu og framkvæmdum nýs skautasvells í Skautahöllinni á Akureyri. Meginhlutverk VMÍ er að efla vetraríþróttir og aðstöðu þeirra. Samkvæmt nýframkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2016 eru 150 milljónir áætlaðar í verkið.

4.Hestamannafélagið Léttir - beiðni um kaup á fjölnotatæki fyrir reiðhöll

Málsnúmer 2015110108Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. október 2015 frá Hólmgeiri Valdemarssyni formanni og Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra Léttis þar sem óskað er eftir að fjárfest verði í fjölnotatæki/fjórhjóli til umhirðu á gólfi í reiðhöll félagsins í Hlíðarholti.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar.

5.Foreldrafélag Brekkuskóla

Málsnúmer 2015100144Vakta málsnúmer

Skólanefnd gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum 9. nóvember 2015:
"Ályktun aðalfundar foreldrafélags Brekkuskóla þann 20. október 2015 um aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir nemendur Brekkuskóla.
Fræðslustjóri hefur fundað með fulltrúum íþróttaráðs til að finna lausn á málinu. Óskað hefur verið eftir hávaðamælingu í Íþróttahöllinni og beðið er niðurstaðna.
Að öðru leyti er erindinu vísað til íþróttaráðs."
Íþróttaráð og samfélags- og mannréttindadeild leggur metnað sinn í að gera íþróttaaðstöðu nemenda á Akureyri sem bestar.
Íþróttaráð felur formanni, forstöðumanni íþróttamála og forstöðumanni Íþróttahallarinnar að svara bréfi foreldrafélagsins.

6.Karatefélag Akureyrar - ósk um styrk til kaupa á keppnisbúnaði

Málsnúmer 2015110119Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. nóvember 2015 frá Rut Guðbrandsdóttur fyrir hönd Karatefélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk til að kaupa keppnisbúnað í Kumite.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

7.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun.

Fundi slitið - kl. 15:33.