Íþróttaráð

177. fundur 22. október 2015 kl. 14:00 - 16:04 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Birna Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Jónas Björgvin Sigurbergsson Æ-lista hefur tekið sæti aðalmanns í stað Sigurjóns Jónassonar og Áshildur Hlín Valtýsdóttir hefur tekið sæti varamanns í stað Jónasar Björgvins Sigurbergssonar.

Árni Óðinsson S-lista boðaði forföll og mætti Ólína Freysteinsdóttir í hans stað til fundar.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka af dagskrá 2. lið í útsendri dagskrá Íþróttafélagið Þór - ósk um styrk vegna frístundarútu og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

1.Kvenna-/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs

Málsnúmer 2014040042Vakta málsnúmer

Erindi ódagsett frá Stefáni Vilberg Leifssyni formanni körfuknattleiksdeilar Þórs þar sem óskað er eftir styrk og undanþágu á viðmiðum íþróttaráðs vegna afgreiðslu jafnréttisstyrkja. Erindinu var frestað á síðasta fundi íþróttaráðs.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

2.Vinir Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2011120027Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 1. október 2015 frá vinum Hlíðarfjalls þar sem óskað er eftir að samstarfsamningur verði endurnýjaður til næstu þriggja ára. Drög að nýjum samningi fylgja með erindinu.
Geir Gíslason og Hlynur Jónsson mættu á fundinn fyrir hönd vina Hlíðarfjalls undir þessum lið.
Íþróttaráð tekur jákvætt í erindið og felur Þórunni Sif Harðardóttur, Ingibjörgu Ólöfu Isaksen og forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.
Íþróttaráð þakkar forsvarsmönnum vina Hlíðarfjalls fyrir komuna á fundinn.

3.Starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018

Málsnúmer 2014080084Vakta málsnúmer

Umræður og vinna við starfsáætlun íþróttaráðs.
Íþróttaráð deildi með sér verkefnum meðal nefndarmanna við gerð starfsáætlunar.

4.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Umræður um fjárhagsáætlun íþróttaráðs fyrir starfsárið 2016.

Fundi slitið - kl. 16:04.