Framkvæmdaráð

294. fundur 31. október 2014 kl. 11:25 - 12:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2014 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2013090299Vakta málsnúmer

Kynnt var 8 mánaða staða fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014 og væntanleg staða í lok ársins.
Ljóst er að sorphreinsun og sorpeyðing fer um 35,0 mkr. fram úr áætlun, umferðar- og samgöngumál fara um 72,0 mkr. fram úr áætlun og umhverfismál fara um 30,0 mkr. fram úr fjárhagsáætlun ársins 2014.

Framkvæmdaráð felur formanni framkvæmdaráðs og bæjartæknifræðingi að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessara liða.

2.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir stöðu verkefna ársins 2014.

Framkvæmdaráð frestar afgreiðslu.

3.Mótorhjólasafn Íslands - styrkbeiðni vegna frágangs lóðar

Málsnúmer 2014090306Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Haraldi Vilhjálmssyni f.h. Mótorhjólasafns Íslands, dagsett 28. september sl. þar sem óskað er eftir styrk til frágangs lóðar.

Framkvæmdaráð vísar erindinu til bæjarráðs.

4.Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2014080067Vakta málsnúmer

Farið var yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 og lögð fram ný framkvæmdaáætlun.

Framkvæmdaráð samþykkir að fallið verði frá kaupum á notuðum körfubíl fyrir Slökkvilið Akureyrar. Fjármagn verði þess í stað sett í viðhald á núverandi körfubíl.

Framkvæmdaráð samþykkir að heildarrammi vegna framkvæmda og tækjakaupa í eignarsjóði verði 632 mkr.

5.Breyting á deiliskipulagi við Naustaskóla/Naustatjörn

Málsnúmer 2014100338Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk um breytingar á lóðamörkum og að fjölga bílastæðum við Naustaskóla/Naustatjörn, skv. uppdrætti framkvæmdadeildar dagsett 29. október 2014.

Framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir deiliskipulagsbreytingu hjá skipulagsnefnd.

6.Snjómokstur og hálkuvarnir 2014-2016 - útboð

Málsnúmer 2014090240Vakta málsnúmer

Kynnt staða mála vegna snjómokstursútboðs. Opnun sem átti að fara fram 29. október sl. var frestað, en athugasemdir bárust frá verktökum.
Fundargerð samráðshóps verktaka dagsett 28. október sl. og minnisblað framkvæmdadeildar dagsett 30. október sl. voru lögð fram.

Framkvæmdaráð samþykkir að aldurstakmark verði á öll tæki í útboðinu og miðað verði við árgerð 2005 og nýrra. Tækjum verði síðan raðað upp í flokk A (tæki sem uppfylla kröfur) og flokk B (tæki sem uppfylla ekki kröfur). Heimilt er að nota tæki úr flokki B, komi til þess að ekki bjóðist nægjanlega mörg tæki úr flokki A.

Samningstími verði óbreyttur, 3 ár með framlengingarmöguleikum.

7.Önnur mál í framkvæmdaráði 2014

Málsnúmer 2014010035Vakta málsnúmer

Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista spurðist fyrir um mengunarmæla.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista spurðist fyrir um framkvæmdir við golfvöll og við Dalsbraut.

Fundi slitið - kl. 12:55.