Framkvæmdaráð

286. fundur 23. maí 2014 kl. 11:30 - 12:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
Dagskrá

1.Verklagsreglur veitustofnana

Málsnúmer 2013050097Vakta málsnúmer

Nýjar tillögur að verklagsreglum Akureyrarbæjar vegna yfirborðsfrágangs í bæjarlandinu lagðar fram.

Framkvæmdaráð samþykkir samhljóða verklagsreglur Akureyrarbæjar vegna yfirborðsfrágangs í bæjarlandinu, útgáfa 1.1., dags. 22. maí 2014.

2.Stígur meðfram Drottningarbraut

Málsnúmer 2011100134Vakta málsnúmer

Kynntar niðurstöður verðkönnunarinnar Drottningarbrautarstígur - 2014.
Þrjú tilboð bárust og voru þau öll innan kostnaðaráætlunar:
Skútaberg ehf, kr. 15.388.500 (77,0%)
Finnur ehf, kr. 16.709.200 (83,6%)
G Hjálmarsson hf, kr. 17.582.000 (88,0%)
Kostnaðaráætlun var kr. 19.990.000.

Framkvæmdaráð samþykkir samhljóða að samið verði við lægstbjóðanda, Skútaberg ehf.

3.Dráttarvél - útboð 2014

Málsnúmer 2014050135Vakta málsnúmer

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála, kynnti niðurstöður vegna verðkönnunar á dráttarvél fyrir Framkvæmdamiðstöð Akureyrar og gerði grein fyrir yfirferð framkvæmdadeildar á innsendum tilboðum.
Alls bárust 13 tilboð frá 5 aðilum.

Framkvæmdaráð samþykkir samhljóða að keypt verði vél frá Jötunn vélum, Valtra N103 HiTec5, kr. 12.767.115.

4.Fjárhagsáætlun 2014 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2013090299Vakta málsnúmer

Kynnt staðan á verklegum framkvæmdum árið 2014.

5.Önnur mál í framkvæmdaráði 2014

Málsnúmer 2014010035Vakta málsnúmer

Silja Dögg Baldursdóttir L- lista spurðist fyrir um gangbrautarmerkingar við Hof og í Listagili.
Formaður framkvæmdaráðs þakkaði nefndarmönnum og starfsmönnum fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu.

Fundi slitið - kl. 12:05.