Framkvæmdaráð

266. fundur 24. apríl 2013 kl. 08:15 - 10:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá
Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi A-lista sat fundinn í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista boðaði forföll sem og varafulltrúi hennar.
Sigfús Karlsson B-lista boðaði forföll sem og varafulltrúi hans.

1.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Kynning verkefna frá hverfisnefndum.
Fulltrúar efirtaldra nefnda mættu á fundinn og gerðu grein fyrir sínum hugmyndum:
F.h. Lunda- og Gerðahverfis mætti Elvar Sævarsson, Berglind Rafnsdóttir f.h. Holta- og Hlíðahverfis, Ragnar Jón Ragnarsson f.h. Brekku og Innbæjar og Anna Sjöfn Jónasdóttir f.h. Naustahverfis.

Framkvæmdaráð þakkar fulltrúum hverfisnefnda fyrir þeirra kynningu.

Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 09:39.

2.Borgarbraut frá Merkigili að Bröttusíðu - nýframkvæmd 2013

Málsnúmer 2013030123Vakta málsnúmer

Skipulagsstofnun hefur óskað eftir því með bréfi dags. 10. apríl 2013 að Akureyrarbær gefi umsögn um hvort fyrirhugaðar framkvæmdir við Borgarbraut skuli háðar mati á umhverfisáhrifum skv. 6. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og 11. gr. reglugerðar nr. 106/2000 m.s.b. um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 3. viðauka í framangreindum lögum.

Framkvæmdaráð telur að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Fundi slitið - kl. 10:00.