Framkvæmdaráð

256. fundur 07. september 2012 kl. 08:15 - 12:02 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hjörleifur H. Herbertsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá
Bæði aðal- og varaáheyrnarfulltrúi S-lista boðuðu forföll.

1.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Tekin fyrir afgreiðsla hátíðarfundar bæjarstjórnar í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar þann 29. ágúst sl. um að veita allt að hálfum milljarði (500 milljónum króna) í sérstakt umhverfisátak.
Farið var í ökuferð frá Ráðhúsi kl. 08:15 og skoðaðir áhugaverðir staðir sem tengjast umhverfismálum.
Oddur Helgi Halldórsson L-lista vék af fundi kl. 11:26 og Hjörleifur H. Herbertsson L-lista, aldursforseti, tók við fundarstjórn.

2.Fjárhagsáætlun 2013 - framkvæmdaráð

Málsnúmer 2012080021Vakta málsnúmer

Unnið var að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013. Farið var yfir forsendur fjárhagsáætlunar og starfsáætlun.

3.Framkvæmdadeild - framkvæmdaáætlun 2012

Málsnúmer 2012050068Vakta málsnúmer

Kynnt var staða framkvæmda ársins 2012 og farið yfir nýjar hugmyndir um forgangsröðun verkefna.
Halla Björk Reynisdóttir L-lista vék af fundi kl. 11:52 og Kristín Þóra Kjartansdóttir V-lista vék af fundi kl. 12:00.

4.Fráveita - upplýsingar um stöðu mála 2011

Málsnúmer 2011120044Vakta málsnúmer

Gerð var grein fyrir samningum við lægstbjóðanda verksins, Skútaberg/Árna Helgason.

Framkvæmdaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda og ganga til samninga við Skútaberg/Árna Helgason.

Fundi slitið - kl. 12:02.