Framkvæmdaráð

214. fundur 06. ágúst 2010 kl. 08:15 - 10:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson
  • Tómas Björn Hauksson fundarritari
Dagskrá

1.Aðalskoðun leiksvæða

Málsnúmer 2010070094Vakta málsnúmer

Erindi dags. 2. júlí 2010 frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra varðandi aðalskoðun á leiksvæðum.

Stefnt skal að aðalskoðun leiksvæða þannig að ákvæðum 12. greinar um innra eftirlit verði fullnægt.

2.Sorpmál - útboð 2010

Málsnúmer 2010020076Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson deildarstjóri framkvæmdadeildar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi útboð vegna sorphirðu og fór yfir val á leið A og B.

Framkvæmdaráð ákveður að breyta fyrri ákvörðun úr leið A í leið B og vísar þeirri ákvörðun til bæjarráðs.

3.Launanefnd sveitarfélaga - verkfallsboðun LSS

Málsnúmer 2010070089Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar grunnupplýsingar varðandi kjaradeilu Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

4.Framkvæmdaráð - önnur mál

Málsnúmer 2010010117Vakta málsnúmer

Sigfús Karlsson fór fram á það að fundir í framkvæmdaráði yrðu framvegis einnig boðaðir með sms til aðalmanna framkvæmdaráðs.

Fundi slitið - kl. 10:15.