Framkvæmdaráð

223. fundur 10. desember 2010 kl. 08:15 - 11:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson
  • Jón Birgir Gunnlaugsson
  • Tómas Björn Hauksson
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá

1.Samþykkt um hundahald í Akureyrarkaupstað - endurskoðun

Málsnúmer 2010020078Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð bæjarstjórnar dags. 7. desember 2010:
Tekin fyrir að nýju drög að nýrri samþykkt um hundahald.
Bæjarlögmaður, Inga Þöll Þórgnýsdóttir, sat fundinn undir þessum lið.
Framkvæmdaráð samþykkir samþykktina með áorðnum breytingum og sendir hana til bæjarstjórnar til endanlegar afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa Samþykkt um hundahald í Akureyrarkaupstað til frekari yfirferðar í framkvæmdaráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

Framkvæmdaráð samþykkir samþykktina með áorðnum breytingum og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

2.Samþykkt um kattahald í Akureyrarkaupstað - endurskoðun

Málsnúmer 2010110078Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju drög að samþykkt um kattahald. Frestað á síðasta fundi framkvæmdaráðs þann 19. nóvember sl.
Bæjarfulltrúi A-lista, Sigurður Guðmundsson, sat fundinn undir þessum lið.

Framkvæmdaráð samþykkir samþykktina með áorðnum breytingum og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

3.Fjárhagsáætlun 2011 - framkvæmdaráð

Málsnúmer 2010090168Vakta málsnúmer

Endanleg vinna við gerð fjárhagsáætlunar og framkvæmdaáætlunar.
Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið og bæjarfulltrúi A-lista, Sigurður Guðmundsson, að hluta.

Framkvæmdaráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir komuna á fundinn og hans kynningu.

Framkvæmdaráð samþykkir fjárhagsáætlunina með áorðnum breytingum og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.

4.Hunda- og kattahald - gjaldskrár 2011

Málsnúmer 2010120062Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrám fyrir hunda- og kattahald dags. 9. desember 2010.

Framkvæmdaráð samþykkir gjaldskrárnar fyrir sitt leyti.

5.Forðgæsla 2011

Málsnúmer 2010120057Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fundargerð búfjáreftirlitsnefndar dags. 3. desember 2010 og fjárhagsáætlun fyrir forðagæslu á svæði 18.

Framkvæmdaráð samþykkir fjárhagsáætlun búfjáreftirlitsnefndar fyrir sitt leyti.

Fundi slitið - kl. 11:40.