Framkvæmdaráð

231. fundur 01. apríl 2011 kl. 08:15 - 10:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna- fráveitu og hreinlætismála
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá
Aðalmaður Sigríður María Hammer boðaði forföll og ekki náðist í varamann.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2012-2014

Málsnúmer 2011010090Vakta málsnúmer

Samþykkt 3ja ára áætlun bæjarstjórnar lögð fram til kynningar. Kynntar voru tillögur um áframhaldandi vinnu sem snýr að framkvæmdadeild.

2.Hverfisnefnd Naustahverfis - ýmis málefni í hverfinu

Málsnúmer 2011030143Vakta málsnúmer

Lagt var fram erindi dags. 21 mars sl. frá hverfisnefnd Naustahverfis þar sem spurt var út í uppbyggingu grenndarvalla (opin leiksvæði), malbikun Kjarnabrautar, bílaumferð á göngustígum, aðrein að Bónus verslun og útrýmingu njóla.

Framkvæmdaráð felur Jóni Birgi Gunnlaugssyni forstöðumanni umhverfismála að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

3.Þingvallastræti - endurgerð - 2. áfangi

Málsnúmer 2011030053Vakta málsnúmer

Fimmtudaginn 31. mars 2011 var opnuð verðfyrirspurn vegna Þingvallastrætis, endurgerð, 2. áfangi.
Eftirfarandi tilboð bárust og hafa þau verið yfirfarin og leiðrétt:
G.Hjálmarsson hf - kr. 18.700.000 - 122,2%
Túnþökusala Kristins ehf - kr. 16.859.620 - 110,2%
G.V.Gröfur ehf - kr. 9.862.110 - 64,4%
Finnur ehf - kr. 11.977.500 - 78,3%
Kostnaðaráætlun hönnuða var kr. 15.303.250.

Framkvæmdaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda G.V.Gröfur ehf. Framkvæmdaráð leggur mikla áherslu á að verkið verði klárað á tilsettum tíma og ítrekar ákvæði verðkönnunargagna um skilatíma.

4.Vinnuskóli - fyrirkomulag

Málsnúmer 2009010148Vakta málsnúmer

Kynntar voru tillögur um fyrirkomulag Vinnuskólans í sumar.

Sigfús Arnar Karlsson fulltrúi B-lista óskar bókað:

Tómstundamál eiga ekki heima í Vinnuskóla þar sem þegin eru laun.

5.Snjótroðari í Hrísey

Málsnúmer 2011030168Vakta málsnúmer

Erindi frá Þorgeiri Jónssyni f.h. Ferðamálafélags Hríseyjar dags. 23. mars 2011 með ósk um að fá snjótroðara sem staðsettur er í Hrísey til afnota eða eignar en hann hefur verið afskrifaður úr bókum Akureyrarkaupstaðar. Fyrirhugað er að nýta hann til að gera brautir fyrir gönguskíðafólk og þannig að byggja upp ferðaþjónustu allt árið í Hrísey.

Framkvæmdaráð samþykkir að Ferðamálafélag Hríseyjar fái snjótroðarann til eignar.

6.Skógræktarfélag Eyfirðinga - Landgræðsluskógar

Málsnúmer 2011030149Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Skógræktarfélags Eyfirðinga dags. 29. mars sl. um Landgræðsluskóga í landi Hrappsstaða og Kífsár. Umrætt skógræktarsvæði er partur af fyrirhuguðum Grænum trefli samkvæmt Aðalskipulagi Akureyrar.

Fundi slitið - kl. 10:15.