Framkvæmdaráð

340. fundur 05. desember 2016 kl. 09:30 - 12:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður tæknideildar
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
Dagskrá
Þetta er seinasti fundur framkvæmdaráðs. Nýtt heiti samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 3. janúar 2017 verður umhverfis- og mannvirkjaráð.
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista mætti til fundar í forföllum Þorsteins Hlyns Jónssonar.

1.Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030

Málsnúmer 2015110092Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn um tillögur skipulagsstjóra að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Seinni umræða.
Framkvæmdaráð felur bæjartæknifræðingi að koma athugasemdum framkvæmdaráðs er varðar aðalskipulagið á framfæri við skipulagsstjóra.

2.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Farið yfir 10 mánaða stöðu aðalsjóðs og stöðu á framkvæmdum fyrir árið 2016
Framkvæmdaráð óskar eftir viðauka við snjómokstur að upphæð 30 milljónir króna. Jafnframt er óskað eftir leiðréttingu á leigu vegna gatna þar sem ekki fer saman áætlun á leigu og þeirri upphæð sem millifærð er.

Framkvæmdaráð felur bæjartæknifræðingi að fá leiðréttingu frá fjárreiðudeild vegna skekkju milli eignasjóðs og aðalsjóðs vegna umhverfisátaksverkefna (afmælisátakið frá 2012).

3.Snjómokstur yfirferð á fyrirkomulagi

Málsnúmer 2016120011Vakta málsnúmer

Kynntar tillögur um skipulag við snjómokstur og gerð grein fyrir vinnu starfshóps um verkefnið.
Framkvæmdaráð lýsir áhyggjum sínum af þeim miklu skemmdum sem orðið hafa vegna snjómoksturs í bæjarlandinu.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl. 11:47.

4.Önnur mál í framkvæmdaráði 2016

Málsnúmer 2016010009Vakta málsnúmer

Rætt um ráðningu í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað vegna ráðningar í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Í samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar sem samþykkt var í bæjarstjórn í seinna sinn 17. mars 2015, segir í 50. gr. um ráðningar í æðstu stjórnunarstöður: "Bæjarstjóri, í umboði bæjarstjórnar og að fenginni umsögn viðkomandi fagnefnda, ræður embættismenn sem heyra beint undir hann í skipuriti svo og framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjarsjóðs og veitir þeim lausn frá starfi." Í ljósi þessa ákvæðis geri ég alvarlega athugasemd við þá ákvörðun bæjarstjóra að leita ekki eftir umsögn stjórnar framkvæmdaráðs við ráðningu í stöðu sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.


Formaður framkvæmdaráðs óskar bókað eftirfarandi svar við athugasemdum Njáls eftir að hafa haft samráð við bæjarstjóra;

Samkvæmt 50 gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar segir að bæjarstjóri, í umboði bæjarstjórnar og að fenginni umsögn viðkomandi fagnefnda, ráði embættismenn sem heyra beint undir hann í skipuriti. Samkvæmt nánari skilgreiningu á hverjir teljist embættismenn segir í 9. gr. samþykktar fyrir framkvæmdaráð að bæjarstjóri ráði deildarstjóra framkvæmdadeildar og framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar að fenginni umsögn framkvæmdaráðs.



Bæjarráð sem stjórnsýslunefnd bæjarins samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. september 2016 að leggja niður störf deildarstjóra framkvæmdadeildar og framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar. Bæjarstjórn staðfesti bókunina samhljóða 4. október sl.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 13. október sl. eftirfarandi bókun um nýjar stöður sviðsstjóra hjá Akureyrarbæ; Bæjarráð samþykkir framlagðar starfslýsingar. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra og aðgerðahópi umboð til að auglýsa stöður sviðsstjóra lausar til umsóknar og ganga frá ráðningum í samráði við bæjarráð.
Framkvæmdaráði og stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar ber því ekki að veita umsagnir vegna ráðningar sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs samkvæmt núverandi samþykktum og ofangreindri bókun bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 12:05.