Framkvæmdaráð

336. fundur 06. október 2016 kl. 17:00 - 19:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Dagskrá
Eiríkur Jónsson S-lista sat fundinn í forföllum Helenar Þuríðar Karlsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun 2017- framkvæmdadeild

Málsnúmer 2016080098Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun fyrir Umhverfismiðstöð og Bifreiðastæðasjóð og drög að framkvæmdaáætlun kynnt.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun þessara A og B fyrirtækja og vísar henni til bæjarráðs. Starfsmönnum framkvæmdadeildar er falið að vinna nánar tillögur að framkvæmdaáætlun.

Framkvæmdaráð beinir því til bæjarráðs að endurskoða gjaldskrá vegna bílastæðagjalds.

2.SVA - kaup á strætisvagni 2016

Málsnúmer 2016010147Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð í kaup á metanvögnum fyrir SVA. Alls bárust tilboð frá 3 eftirtöldum aðilum:

Klettur-sala og þjónusta ehf,
kr. 119.643.422

BL Sævarhöfða 2,
kr. 132.571.399

Bílaumboðið Askja ehf,

kr. 196.949.200

Bílaumboðið Askja ehf, frávik,
kr. 148.254.400

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Framkvæmdaráð samþykkir að taka tilboði frá Kletti-sölu og þjónustu ehf.

3.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Lögð fram 8 mánaða staða í aðalsjóði þeirra deilda sem tilheyra framkvæmdadeild og staða á verkefnum í Eignarsjóði og Umhverfisátaki. Kynnt kostnaðaráætlun við tilraunaverkefni á þrengingum Glerárgötu og Þingvallastrætis.

Bæjartæknifræðingi er falið að skoða nánar hagkvæmni á kaupum á nýrri bifreið fyrir ferliþjónustu. Forstöðumanni Umhverfismiðstöðvar er falið að taka saman minnisblað um samanburð á rekstrarkostnaði ferliþjónustu Akureyrarbæjar við önnur sveitarfélög.

4.Önnur mál í framkvæmdaráði 2016

Málsnúmer 2016010009Vakta málsnúmer

a. Kynnt niðurstaða á tilboði á tækjum í eigu Umhverfismiðstöðvar.

b. Kynnt tillaga að merkingu á strætisvagna „Frítt í strætó“.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
a. Meirihluti framkvæmdaráðs hafnar tilboðum og leggur til að tækin verði auglýst aftur í bæjarmiðli og Bændablaðinu.

b. Framkvæmdaráð samþykkir tillöguna.

Fundi slitið - kl. 19:00.