Framkvæmdaráð

332. fundur 22. júlí 2016 kl. 08:05 - 09:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti ekki til fundar né varamaður hennar.

1.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður opnunar tilboðs í Moldarlosunarveg sem opnað var 15 júlí sl.

Tvö tilboð bárust.

Einnig voru kynnt tilboð í bíla og tæki fyrir Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar og malbikunarframkvæmdir sumarsins.
Framkvæmdaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda Finn ehf að upphæð kr. 10.664.820.

Bæjartæknifræðingi er falið að ganga frá samkomulagi við Golfklúbb Akureyrar um aðkomu þeirra að málinu.

2.Önnur mál í framkvæmdaráði 2016

Málsnúmer 2016010009Vakta málsnúmer

Rætt um nýtt leiðakerfi SVA og seinkun á útboði nýrra metanvagna sem opna átti í júlí, en vegna breytinga á útboðsgögnum frestast það fram í lok september nk.

Fundi slitið - kl. 09:15.