Framkvæmdaráð

326. fundur 18. mars 2016 kl. 08:15 - 10:42 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Hermann Ingi Arason V-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.

1.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Kynnt staðan á fjárhagsáætlun ársins fyrir janúar- og febrúarmánuð og rætt um hvernig draga má úr rekstrarútgjöldum og/eða auka tekjur sbr. kynningu aðgerðarhóps frá 19. febrúar sl.

Einnig var farið yfir tillögur vinnuhóps um kaup á tækjum fyrir umhverfismiðstöð.

Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Engilbert Ingvarsson aðstoðarverkstjóri kynntu tillögurnar.
Framkvæmdaráð ákveður að dregið verði verulega úr sandburði og snjómokstri fram til vors. Jafnframt hvetur framkvæmdaráð bæjarbúa til að sópa í kringum sínar eignir.

2.Útboð framkvæmdadeildar árið 2015

Málsnúmer 2015020018Vakta málsnúmer

Farið yfir kosti og galla útboðsins "Smáverk fyrir Akureyrarbæ 2015" og ákvörðun tekin um nýtt útboð.

Jónas Vigfússon forstöðumaður umhverfismiðstöðvar fór yfir málið.
Framkvæmdaráð samþykkir að farið verði í nýtt útboð.

3.Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2014080067Vakta málsnúmer

Kynnt niðurstaða fjárhagsáætlunar ársins 2015.

4.Blindrafélagið - ferðaþjónusta blindra - endurskoðun á samningi

Málsnúmer 2011120036Vakta málsnúmer

Farið yfir endanleg drög af nýjum þjónustusamningi um akstur.
Framkvæmdaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

5.Breytingar á rekstri á húseignum sem tilheyra rekstri framkvæmdadeildar

Málsnúmer 2016030133Vakta málsnúmer

Farið yfir hugmyndir um rekstur á almenningssalernum og möguleika á breytingum á húsakosti í Hrísey.
Framkvæmdaráð óskar eftir umsögn stjórnar Akureyrarstofu um mögulega lokun á almenningssalernum.

Framkvæmdaráð er sammála því að sameina starfsemi björgunarsveitar, slökkviliðs og áhaldahúss í Hrísey undir sama þaki svo framarlega sem það leiði ekki til aukins kostnaðar.

Bæjartæknifræðingi falið að vinna málið áfram með Fasteignum Akureyrarbæjar.

6.Önnur mál í framkvæmdaráði 2016

Málsnúmer 2016010009Vakta málsnúmer

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar eftir því að fjármálastjóri sveitarfélagsins komi fyrir framkvæmdaráð og ræði stöðu eignarsjóðs gatna og þróun hans undanfarin áratug.

Einnig óskar Njáll eftir að afskrifta- og endurmatsreglur sjóðsins verði kynntar fyrir ráðinu.

Fundi slitið - kl. 10:42.