Framkvæmdaráð

322. fundur 22. janúar 2016 kl. 09:55 - 12:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Jón Orri Guðjónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.

1.Moldartippur - Réttarhvammi

Málsnúmer 2016010088Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um útboð á landi við Réttarhvamm til leigu.
Framkvæmdaráð samþykkir að bjóða svæðið út að nýju.

2.Yfirborðsmerking gatna 2016

Málsnúmer 2016010146Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um samninga vegna yfirborðsmerkinga gatna fyrir sumarið 2016.
Framkvæmdaráð samþykkir að samið verði við Vegamálun ehf vegna yfirborðsmerkinga fyrir árið 2016.

3.SVA - kaup á strætisvagni 2016

Málsnúmer 2016010147Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um kaup á notuðum strætisvagni og kynnt staðan á útboði vegna kaupa á metan vögnum fyrir SVA.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur að gjaldskrá fyrir Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar og framkvæmdaáætlun ársins 2016.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða gjaldskrá Framkvæmdamiðstöðvar fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs ásamt viðauka vegna breytinga á tekjum.
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 11:55 og Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista vék af fundi kl. 11:57.

5.Snjómokstur - íbúafundur 2015

Málsnúmer 2015110122Vakta málsnúmer

Rætt um framhald verklags vegna snjómoksturs.

Fundi slitið - kl. 12:05.