Framkvæmdaráð

319. fundur 20. nóvember 2015 kl. 08:15 - 11:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019, sem tekin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember sl. og endurskoðun á rekstri Slökkviliðs Akureyrar m.t.t. sérfræðiaðstoðar.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn.
Framkvæmdaráð óskar eftir að sérfræðiþjónusta verði hækkuð hjá Slökkviliði Akureyrar um 1,5 milljónir króna og vísar því til bæjaráðs.

2.Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2014080067Vakta málsnúmer

Tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna reksturs Slökkviliðs Akureyrar.
Einnig farið yfir kostnað og hönnunarferli við framkvæmd Drottningarbrautarstígs.
Ljóst er að áætlun um brunavarnir fer fram úr áætlun ársins 2015.
Framkvæmdaráð óskar því eftir að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun, samtals 49,7 mkr. Umframkostnaður er vegna launa, um 60,2 mkr. sem kemur til meðal annars vegna starfsmats. Þjónustukaup eru um 14,5 mkr. Á móti kemur að tekjur verða 25,0 mkr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 17. nóvember sl. hluta af þessum viðauka.
Framkvæmdaráð vísar því sem eftir stendur til bæjaráðs.

3.Umferðartalningar - breytingar síðustu ára

Málsnúmer 2015110121Vakta málsnúmer

Farið yfir umferðartalningar síðustu ára með tilkomu framkvæmda sem hafa haft áhrif á umferðartölur.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar mætti á fundinn undir þessum lið.
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista vék af fundi kl. 10:10.

4.Snjómokstur - kynningarfundur 2015

Málsnúmer 2015110122Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig staðið verði að kynningarfundi um snjómokstur og hálkuvarnir.
Framkvæmdaráð ákveður að haldinn verði upplýsinga- og kynningarfundur fyrir íbúa miðvikudaginn 9. desember kl. 17:00.
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 10:30.

5.Gatnalýsing - kostnaður

Málsnúmer 2015110120Vakta málsnúmer

Kynntur kostnaður vegna reksturs á gatnalýsingu eftir að framkvæmdadeild tók við verkefninu af Norðurorku.
Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála og Tómas Björn Hauksson fortöðumaður gatna-, fráveitu- og hreinlætismála viku af fundi kl. 11:05.

6.Stjórnunar- og rekstrarúttekt á starfsemi Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar og mótun úrbótaáætlunar

Málsnúmer 2014110035Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók framkvæmdaráðs.

Fundi slitið - kl. 11:50.