Fræðsluráð

59. fundur 01. nóvember 2021 kl. 13:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Þorlákur Axel Jónsson formaður
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Jóhanna María Agnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Jón Þór Sigurðsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Snjólaug Jónína Brjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Therése Möller fulltrúi leikskólakennara
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Einar Gauti Helgason V-lista mætti í forföllum Þuríðar Sólveigar Árnadóttur.

1.Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla - skýrsla 2021

Málsnúmer 2021101980Vakta málsnúmer

Skýrsla um ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla sem gefin var út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í apríl 2021 lögð fram til kynningar. Skýrslan er samstarfsverkefni mennta- og menningarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og 13 sveitarfélaga.

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar.

Einnig var upplýst að kynning á skýrslunni fari fram þriðjudaginn 9. nóvember á Akureyri.

2.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar:


Lögð fram tillaga M-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði.

Hlynur Jóhannsson verði aðalfulltrúi í stað Rósu Njálsdóttur.

Viðar Valdimarsson verði varafulltrúi í stað Hlyns Jóhannssonar.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.


Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði:

Heiðrún Ósk Ólafsdóttir verði varafulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.


Meðfylgjandi er tilkynning um breytingar á áheyrnarfulltrúum í fræðsluráði, Daníel Sigurður Eðvaldsson tekur við af Jóhanni Gunnarssyni sem fulltrúi foreldra grunnskólabarna.

3.Ráðning skólastjóra Tröllaborga

Málsnúmer 2021102300Vakta málsnúmer

Karl Frímannssom sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir ráðningu í starf skólastjóra Tröllaborga.
Anna Jóna Guðmundsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Tröllaborga frá og með 1. nóvember 2021.

Alls sóttu fjórir um stöðuna.

Anna hefur 18 ára reynslu af stjórnun í leikskólum þar af 14 ár sem leikskólastjóri. Lengst var hún skólastjóri í Ársölum í Skagafirði þar sem hún kom að bæði uppbyggingu á öflugu skólastarfi og innleiðingu margra umbótaverkefna. Hún lauk leikskólakennaraprófi frá Kennaraháskólanum í Tromsö árið 1987 og meistaraprófi frá Háskólanum á Akureyri árið 2012 þar sem hún fjallaði um menntun og tónlist í lokaverkefni sínu.

Fræðsluráð óskar Önnu velfarnaðar í starfi.
Jón Þór Sigurðsson fulltrúi foreldra leikskólabarna vék af fundi kl. 14:51.


4.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2022-2025

Málsnúmer 2021090517Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir vinnu vegna hagræðingarkröfu bæjarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna tillögurnar áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið.