Fræðsluráð

49. fundur 26. apríl 2021 kl. 13:30 - 14:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Valgerður S Bjarnadóttir
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Bryndís Björnsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Drífa Þórarinsdóttir gestur
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Rakel Alda Steinsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Valgerður S Bjarnadóttir S-lista mætti í forföllum Þorláks Axels Jónssonar.

1.Leikskólinn Klappir - undirbúningur

Málsnúmer 2020061123Vakta málsnúmer

Staðan á framkvæmdum við leikskólann Klappir lögð fram til kynningar.

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla á fræðslusviði fór yfir stöðuna á innritunar- og búnaðarkaupamálum.

2.Rekstur fræðslusviðs 2021

Málsnúmer 2021030553Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir rekstrarstöðu málaflokksins á tímabilinu frá janúar til mars 2021.
Fræðsluráð leggur ríka áherslu á að settum fjárhagsramma sé fylgt sem og áætlun um fjölda stöðugilda. Fræðsluráð felur formanni og fræðslustjóra að vinna málið áfram.

3.Skóladagatal leik- og grunnskóla 2021-2022

Málsnúmer 2021020395Vakta málsnúmer

Skóladagatöl grunnskóla Akureyrarbæjar fyrir skólaárið 2021-2022 lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir framlögð skóladagatöl.

Fundi slitið - kl. 14:45.