Fræðsluráð

29. fundur 20. apríl 2020 kl. 13:30 - 15:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Bryndís Valgarðsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Niðurstöður úr ytra mati á starfi Lundarskóla lagðar fram til kynningar.
Skila þarf inn umbótaáætlun til Menntamálastofnunar fyrir 20. september 2020.

2.Endurskoðun á skóladagatölum leik- og grunnskóla 2019-2020

Málsnúmer 2020040127Vakta málsnúmer

Í ljósi tilmæla almannavarna um takmörkun á skólahaldi er ljóst að breyta þarf skóladagatölum leik- og grunnskóla nú á vordögum.
Ef þörf er fyrir tilfærslu á starfsdögum/skipulagsdögum leggur fræðsluráð áherslu á að það verði gert með formlegum hætti, í samráði við starfsfólk og með staðfestingu skólaráða í grunnskólum eða foreldraráða í leikskólum. Fræðsluráð heimilar ekki fjölgun starfsdaga frá því sem nú er á samþykktum skóladagatölum og beinir því til leik- og grunnskóla að færa til daga svo þeir nýtist skólastarfi á hverjum stað sem best.

3.Viðbragðsáætlun og aðgerðir á fræðslusviði

Málsnúmer 2020030390Vakta málsnúmer

Upplýsingar lagðar fram um stöðu skólahalds í leik- og grunnskólum og tónlistarskólanum.
Fræðsluráð vill ítreka þakkir sínar til starfsfólks í skólum bæjarins fyrir frábær störf í þeim aðstæðum sem nú eru uppi í samfélaginu. Staðan kallar óhjákvæmilega á aðra starfshætti en starfsfólk hefur sannarlega sýnt styrk, dugnað og útsjónarsemi með hagsmuni barna og ungmenna að leiðarljósi. Það hefur sýnt sig að vel hefur tekist til miðað við aðstæður og starfsfólk á heiðurinn af því.

4.Viðurkenningar fræðsluráðs

Málsnúmer 2016010018Vakta málsnúmer

Árlega veitir fræðsluráð viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf í skólum Akureyrarbæjar. Vegna takmarkana á samkomuhaldi verður ekki hægt að hafa sama háttinn á og undanfarin ár.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að leita leiða til að hægt verði að afhenda viðurkenningar nú í maí fyrir framúrskarandi störf í skólum Akureyrarbæjar.

5.Sumarlokanir leikskóla

Málsnúmer 2020040396Vakta málsnúmer

Meirihluti fræðsluráðs samþykkir að sumarlokanir leikskóla árið 2021 verði áfram með sama hætti og núgildandi fyrirkomulag kveður á um.

Þórhallur Harðarson D-lista og Rósa Njálsdóttir M-lista greiddu atkvæði gegn tillögunni.

6.Rekstur fræðslumála 2020

Málsnúmer 2020010575Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar kynnti fjárhagsstöðu málaflokksins fyrstu þrjá mánuði ársins.

Fundi slitið - kl. 15:30.