Fræðsluráð

26. fundur 17. febrúar 2020 kl. 13:30 - 15:45 Oddeyrarskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Bryndís Valgarðsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fræðslusviðs
Dagskrá
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar.

1.Leiðbeinandi reglur um myndatökur í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2020020115Vakta málsnúmer

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður kom á fundinn og kynnti leiðbeinandi reglur um myndatökur í leik- og grunnskólum.

2.Gjaldskrá dagforeldra og niðurgreiðslur til foreldra

Málsnúmer 2018040176Vakta málsnúmer

Kynntar breytingar á gjaldskrá dagforeldra 1. janúar 2020, 1. febrúar 2020 og 1. apríl 2020.

Við ákvörðun gjaldskrár Akureyrarbæjar fyrir árið 2020 var gengið út frá 2,5% hækkun frá 1. janúar 2020 samkvæmt Lífskjarasamningi. Í ljósi þess að illframkvæmanlegt er að hækka hlut foreldra afturvirkt, tekur Akureyrarbær á sig alla hækkun frá 1. janúar til 31. mars, en gjaldskrá foreldra hækkar frá 1. apríl 2020 um 2,5%. Kostnaður foreldra við gjaldskrárhækkun miðað við hærra gjaldið fer því úr 28.256 kr. í 28.960 kr. miðað við 8 klst. dvalartíma án matarkostnaðar og lægra gjaldið fer úr 17.688 kr. í 18.128 kr. miðað við sama dvalartíma. Það skal tekið fram að leikskólagjaldið fyrir 8 klst. dvalartíma er nokkru hærra eða 29.872 kr. og 19.912 kr.

Áætlaður kostnaðarauki á árinu 2020 fyrir Akureyrarbæ vegna þessara hækkana er á bilinu 13-15 m.kr. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 er ekki áætlað fyrir breytingum vegna væntanlegra kjarasamninga.

Meirihluti fræðsluráðs samþykkir gjaldskrárhækkun á hlut foreldra um 2,5% frá 1. apríl 2020 og vísar til bæjarráðs.

Ekki er óskað eftir viðauka að svo stöddu.

Gjaldskráin var samþykkt með þremur atkvæðum meirihluta fræðsluráðs.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista og Rósa Njálsdóttir M-lista sátu hjá.

3.Búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020

Málsnúmer 2020020408Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir tillögu um búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna kaupanna og vísar afgreiðslu til umhverfis- og mannvirkjaráðs. Jafnframt hvetur fræðsluráð skólastjórnendur til að huga að fjölbreyttu námsumhverfi, takmarkaðri kyrrsetu og ólíkum þörfum nemenda þegar skipulögð eru búnaðarkaup í kennslustofur, s.s. dýnur á gólf eða borð til að standa við.

Þuríður S. Árnadóttir fulltrúi VG gerir eftirfarandi bókun varðandi úthlutun til búnaðarkaupa í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020.

Þegar endurnýja á stóla og borð í kennslustofum skal horft til nýrra þátta; keypt sé hækkanleg borð fyrir 2/3 nemenda, stólar fyrir 1/3 nemenda, sófar og dýnur fyrir 1/3. Auk þess verði keypt eitt þrekhjól, hengirúm ef góðar festingar eru fyrir hendi og eitt lítið trampolín.

4.Nútímavæðing í skólum

Málsnúmer 2017080076Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar kynnti tillögu að skiptingu fjármuna vegna nútímavæðingar skólanna fyrir árið 2020.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um skiptingu fjármagns til þróunar skólastarfs í leik- og grunnskólum.

5.Fyrirspurn um eingreiðslu til dagforeldra

Málsnúmer 2020020428Vakta málsnúmer

Erindi frá Dagvistun félagi dagforeldra á Akureyri dagsett 12. febrúar 2020 með ósk um að þau fái greiddar afturvirkar hækkanir (eingreiðslu) sem eru hluti af nýsamþykktum kjarasamningi Starfsgreinasambandsins/Einingar-Iðju við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fræðsluráð hafnar erindinu.

Dagforeldrar eru verktakar og því ekki aðilar að umræddum kjarasamningi.

6.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022

Málsnúmer 2019110081Vakta málsnúmer

Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri, Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, Fjóla Kristín Helgadóttir deildarstjóri, Oliwia Moranska nemandi í 10. bekk og Þura Björgvinsdóttir nemandi í 10. bekk komu á fundinn og kynntu starf Oddeyrarskóla.

Fundi slitið - kl. 15:45.