Fræðsluráð

23. fundur 06. janúar 2020 kl. 13:30 - 14:30 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar.
Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs boðaði forföll.
Ellý Dröfn Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólakennara boðaði forföll.

1.Rekstur fræðslumála 2019

Málsnúmer 2019030196Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu 11 mánuði ársins 2019.

2.Starfsáætlun fræðsluráðs 2020

Málsnúmer 2019050580Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar endurskoðuð starfsáætlun fræðsluráðs fyrir árið 2020.

3.Dagforeldrar - niðurgreiðsla á 8. tímanum

Málsnúmer 2020010044Vakta málsnúmer

Formaður fræðsluráðs og forstöðumaður rekstrar gerðu grein fyrir tillögu að niðurgreiðslu á 8. tímanum hjá dagforeldrum.
Fræðsluráð samþykkir framlagða breytingu á gjaldskrá dagforeldra og vísar henni til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 14:30.